Íþróttablaðið - 01.12.1974, Side 3
Ritstjórnarspjall
Rösklega tvö ár eru liðin frá því íþróttaþing Í.S.Í. sam- ^
þykkti að bæta íþróttaiðkun fatlaðra inn í verksvið sitt. Á
íþróttaþinginu 1972 flutti Oddur Ólafsson læknir og alþingis-
maður fróðlegt erindi um íþróttir fatlaðra og leiddi líkur að
því, hversu margir öryrkjar úti á landi gætu notið góðs af
íþróttaiðkunum. Komst hann að þeirri niðurstöðu, að vænt-
anlega væri þar um að ræða 5—8 þúsund manns.
íþróttaiðkanir fatlaðra hafa þróast ört báðum megin At-
lantshafsins á s.l. 20—30 árum. Ekki hvað minnst var farið
að sinna þessu verkefni í lok síðari heimsstyrjaldarinnar,
þegar hundruð þúsunda manna sneru heim, eftir að hafa
hlotið meiri og minni örkuml á‘vígvellinum.
Frá læknisfræðilegu sjónarmiði eru íþróttaiðkanir fatlaðra
ákjósanlegt tækifæri til endurhæfingar. Þess utan eru þær
kærkomið tækifæri til dægrastyttingar, með ánægju og gleði,
fyrir þúsundir manna og kvenna, sem vegna hlutskiptis síns
verða að búa við miklu fábreytilegra líf en gengur og gerist.
Að því leyti til eru íþróttir fatlaðra nýr þáttur í daglegu lífi
þessa fólks.
Á þeim tveimur árum, sem liðin eru frá því íþróttaþing
Í.S.Í. markaði stefnuna í þessum málum, hefur margvíslega
verið unnið að því að undirbúa jarðveginn.
Megin áherzla hefur verið lögð á alhliða kynningu, ekki
sízt á meðal hins fatlaða fólks, sem af eðlilegum ástæðum
veit lítið um þá möguleika, sem hér eru á ferðinni. í þessu
skyni hefur verið útvegað ýmis koriar upplýsingaefni frá
öðrum þjóðum, svo sem kvikmyndir, leikreglur, tímarit o.
m. fl.
Efnt hefur verið til tveggja leiðbeinendanámskeiða; s.l.
vor í sundi og nú fyrir skömmu var haldið leiðbeinendanám-
skeið, þar sem kynntar voru algengustu íþróttagreinarnar
á þessu sviði. Í.S.Í. hefur fengið Magnús H. Ólafsson íþrótta-
kennara á Akureyri sem íþróttalegan ráðunaut í þessum
efnum og gerði honum kleift á s,l. vori að dvelja á Norður-
löndum og Bretlandi til að afla sér þekkingar og reynslu.
Alþingi hefur tekið vinsamlega tilmælum um fjárstuðning
við uppbyggingu íþrótta fyrir fatlaða og Lionshreyfingin hef-
ur sýnt lofsverðan áhuga og stuðning. Segja má, að málið
eigi vísan stuðning þéirra sem leitað er til.
Fyrir skömmu hafa svo verið stofnuð tvö fyrstu íþrótta-
félög fatlaðra hér á landi, í Reykjavík og Akureyri. Þess er
að vænta að þau eigi fyrir höndum gróskumikið starf, svo
sem reyndin hefur orðið meðal annarra þjóða.
íþróttablaðið býður þessi nýju félög velkomin í hreyfing-
una og óskar þeim farsældar í starfi.
Málgagn iþróttasambands islands
Ritstjóri:
SigurOur Magnússon
Fulltrúi Frjáls Framtaks vió útgáfuna:
Jón B. Pétursson
Skrifstofa ritstjórnar:
tþróttamióstöðinni Laugardal
Útgefandi: Frjáls framtak hf.
Framk væmdast jóri:
Jóhann Briem
Skrifstofa og afgreiósla:
Laugavegi 178
Símar 82300, 82302
Blaóió kemur út annan hvern mánuó.
Lausasóluverð kr. 165,00 eintakió
Árgjald kr. 990.
Héraóssambönd innan tSt:
Héraóssamband Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu
Héraóssamband Strandamanna
Héraössamband Suöur-Þingeyinga
Héraðssamband Vestur-isfiröinga
Héraössambandiö Skarphéöinn
iþróttabandalag Akraness
iþróttabandalag Akureyrar
iþróttabandalag Hafnarfjaröar
iþróttabandalag lsafjaröar
iþróttabandalag Keflavlkur
iþróttabandalag Ólafsfjaröar
tþróttabandalag Reykjavfkur
irþóttabandalag Siglufjaröar
tþróttabandalag Suöurnesja
tþróttabandalag Vestmannaeyja
Ungmenna- og iþróttasamband
Austurlands
Ungmennasamband A.-Húnvetninga
Ungmennasamaband Borgarfjaröar
Ungmennasamband Dalamanna
Ungmennasamband Eyjafjaröar
Ungmennasamband Kjalarnessþings
Ungmennasamband N.-Þingeyinga
Ungmennasamband Skagafjaröar
Ungmennasamband V.-Húnvetninga
Ungmennasamband V.-Skaft.
Ungmennasambandiö Úlfljótur
Sérsambnönd innan ÍSI:
Badmintonsamband tslands
Blaksarnband islands
Borötennissamband tslands
Fimleikasamband islands
Frjálsiþróttasamband islands
Glimusamband lslands
Golfsamband islands
Handknattleikssamband islands
Júdósamband islands
Knattspyrnusamband Islands
Körfuknaltleikssamband islands
Lyftingasamband islands
Siglingasamband tslands
Sklöasamband tslands
Sundsamband islands.
3