Íþróttablaðið - 01.12.1974, Page 23
Vikuna 17.—24. nóvember dvaldi ís-
lenska landsliðið i borðtennis í Færeyj-
um.
Þetta var 15 manna 'hópur. I karla-
flokki voru Ólafur H. Ólafsson, Hjálm-
ar Aðaisteinsson, Ragnar Ragnarsson,
Jón Sigurðsson, Björgvin Jóhannesson og
Birkir Þ. Gunnarsson.
1 flokki eldri unglinga: Gunnar Finn-
björnsson, Jónas Kristjánsson og Hjört-
ur Jóhannsson. 1 flokki unglinga voru
Tómas Guðjónsson, Hjálmtýr Hafsteins-
son og Guðmundur Jóhannsson. Sveina
Sveinbjörnsdóttir keppti í kvennaflokki.
Kona Hjálmars, Margrét Björnsdóttir
var með í förinni.
Flogið var frá Reykjavík í Ijómandi
nóvembersól um hádegi sunnudagsins
17. nóvember. Á flugvellinum á Vogey
tók Sverrir Midjord formaður borðtenn-
isnefndar ISF á móti okkur ásamt Sig-
urd Beck og fleirum. Þeir voru með
langferðabíl sem flutti okkur þvert yfir
Vogey. Ekið var um borð í ferju og er
um 20 mín. sigling yfir til Vestmanna,
sem er á Straumey. Þaðan er kiukku-
tíma bílferð til Þórshafnar. Gist var i
farfuglaheimilinu eða „Vallaraheim" eins
og Færeyingar kalla það.
Mánudaginn 18. nóvember hófst svo
landsleikur og var byrjað á keppni yngri
og eldri unglinga kl. 18.00 og lauk þeirri
keppni með sigri Islendinga 12—1 hjá
eldri unglingum og tapaðist þar einung-
is einn einliðaleikur, og 7—4 hjá yngri
unglingum. Sveina keppti við þrjár fær-
eyskar stúlkur og vann þær auðveldlega.
Þá hófst keppni í karlaflokki og voru
5 menn í einliðaleik og 3 pör í tvíliða-
leik. Þessari viðureign lauk með glæsi-
legum sigri fyrir Island 25—3 og töpuð-
ust einungis tveir einliðaleikir og einn
tvíliðaleikur.
Að lokinni keppni bauð stjórn ÍSF til
hófs í veitingasal íþróttahallarinnar. —
Sverri Midjord afhenti þar hinn glæsi-
lega farandgrip sem Færeyingar hafa
varðveitt frá því þeir komu til Reykja-
víkur s.l. 'haust. Formaður ISF færði
okkur að gjöf krús eina og mikla, hand-
málaða með færeyskri landslagsmynd,
„Risinn og kerlingin".
Um hádegi á þriðjudag var svo siglt
með Smyrli til Tvöreyrar sem er einn
stærsti bær á Suðurey. Það má segja
að Tvöreyri sé vagga borðtennis í Fær-
eyjum og hófust æfingar þar upp úr
seinni heimsstyrjöld. Árið 1959 er haldið
fyrsta borðtennismeistaramót Færeyja
og var meistarinn frá Tvöreyri. Færeyja
meistarinn í ár Alec Beck er einnig það-
an en hann hefur verið Færeyjameistari
í borðtennis sex ár í röð.
Miðvikudaginn 20. nóv. var svo opið
mót á Tvöreyri. Tómas Guðjónsson sigr-
aði í flokki yngri unglinga og var Hjálm-
Framhald á bl*. 4 6
Hjálmar AOalsteimson og ajorgwn Jðhannesson leika tviliSaleik i landskeppn-
inni viO Færeyinga.
23