Íþróttablaðið - 01.12.1974, Qupperneq 26
LÁTA SKIPTA UM BLÓÐ
TIL AÐ NÁ BETRI ÁRANGRI
Stundum geta íþróttir — og í-
þróttamenn — leiðst út á villigötur í
metnaði sínum. Það er nokkuð langt
gengið, þegar örvandi lyf eru .notuð
í því skyni að ná sem mestu út úr
líkama sínum í keppni.
En nú berast fréttir erlendis frá
þess efnis að dæmi séu til þess að í
ákafa sínum eftir góðu gengi á í-
þróttaleikvangnum hafi iþróttamenn
látið skipta um blóð í sér. Þeir
„gefa“ blóð, ekki til að bjarga með-
borgaranum, heldur til að ná enn
lengra á íþróttasviðinu.
Fyrir nokkrum árum benti pró-
fessor Björn Ekblom í Stokkhólmi á
ihættuna á þessu, og nú kveðst hann
hafa dæmi um slíka misnotkun á
blóði, en að svo komnu máli vill hann
ekki greina frá öllum málsatvikum.
Prófessor Ekblom fullyrðir að
fram fari blóðskipti milli tveggja eða
fleiri iþróttamanna í þessu skyni, en
hin aðferðin segir hann að sé þannig,
að íþróttamaðurinn láti taka úr sér
blóð, sem geymt er í blóðbanka Eft-
ir nokkurn tíma hefur blóðið í lík-
ama iþróttamannsins jafnað sig með
eigin framleiðslu. Þá fær viðkomandi
blóð sitt í bankanum aftur. Þetta
telur prófessorinn að hafi áhrif á
sýruflutning blóðsins til vöðvanna.
„Við þetta eykst líkamlegt atgjörvi
og þreytumörkin verða önnur og
haestæðari", segir prófessorinn. —
„Mér virðist þetta heyra undir lyfja-
neyzlu, enda þótt á annan hátt sé,
og í rauninni útilokað að sanna á
ibróttamanninn eins og gert er með
örvandi meðul."
Nú eru meiri möguleikar en
nokkru sinni fyrr á pvi ad hljóta
einhvern af hinum veglegu vinn-
ingum happdrcettis okkar.
En paö eru ekki aöeins pínir
möguleikar til vinnings sem auk-
ast, möguleikar SIBS til pess aö
halda áfram uppbyggingu á
Reykjalundi aukast til muna, og
par meö aukast einnig möguleik-
ar á hjálp, fyrir alla pá sem
purfa á endurhœftngu aö halda.
Happdrœtti SÍBS
Auknir möguleikar allra
26