Íþróttablaðið - 01.12.1974, Síða 33
fjárfestingin er góð, og ætti að
duga lengi. Elan-skíðin lijá Há-
koni kosta frá 2590 krónum
upp i 7401 krónu, allt eftir stærð
þeirra.
Björgvin Schram:
SIGURVEGARINN ÓTRÚ-
LEGA OFT í ADIDAS-SKÓM!
Næst lögðum við leið okkar
vestur í Tryggvagötu, þar sem
við hittum gamalkunnan íþrótta
mann og íþróttaleiðtoga, Björg-
vin Schram, sem um árabil var
formaður KSÍ. Björgvin rekur
umfangsmikla heildverslun,
einkum með matvöru. En eins
og fyrrverandi knattspyrnu-
manni ber, selur hann knatt-
spyrnuskó, og raunar skó fyrir
flest alla íþróttamenn, Adidas.
Merkið þekkja víst allir. Adidas
slofnaði maður að nafni Adi
Dassler árið 1920. Fyrirtækið
tók fyrir sem sérgrein æfinga-
skó handa íþróttamönnum. Lít-
ið í fyrstunni, — en í dag fram-
leiðir Adidas 120 þúsund pör
af skóm lianda íþróttafólki á
degi hverjum.
Á Olympiuleikum hefur það
vakið athygli hversu margt
Olafur Schram og Björgvin Schram viO útstillin&arglugga Adidas. Olafur er raunar
ótrúlega. líkur kappanum Beckenhauer á myndinni til hliOar.
t SkátabúOinni var aO finna gott úrval
til fjallaferöa, jafnvel til fjallaklifurs.
Hér sýnir Magnús úrval af Dachstein-
8kóm.
íþróttafólk hefur borið Adidas-
skó á fótum, t.d. um 85% 1968
i Mexíkó og á verðlaunapalli
voru 92% í þessum þýsku skóm.
Og sagan hefur síðan endurtek-
ið sig á leikunum. Sama er um
HM i knattspyrnu að segja,
Adidas með ræmurnar þrjár hef
ur verið meira en lítið áber-
andi.
Páll Guðmundsson:
VETRARVARA Á GÖMLU
VERÐI, — OG GÓDU
Verðið á skíðaskónum var
upp á það allra besta í Skáta-
búðinni. Þar voru fyrir birgðir
á gömlu verði frá í fyrra, skíða-
skór á 5—14 þúsund krónur, —
„Það má reikna með að þeir
fari í allt að 20 þúsund í vetur“,
sagði Páll Guðmundsson, versl-
unarstjóri. í Skátabúðinni fæst
ýmislegt til skátastarfsins, sem
eflaust er ákjósanlegt í jóla-
pakka skátanna, sem unna úti-
lífi. Þá er þarna gott úrval af
skíðum og öllu tilheyrandi skíða
sporti.
Þá rákumst við þarna á nokk-
uð óvenjulegan útbúnað, —
tæki fyrir þá sem hafa tekið
upp þá góðu íþrótt að klífa f jöll.
Framhald á bls. 4 /
33