Íþróttablaðið - 01.12.1974, Síða 39

Íþróttablaðið - 01.12.1974, Síða 39
sex fljótustu 400 metra hlauparar jarð- arinnar voru að grafa holur í sandinn til þess að fá betri viðbragðsspyrnu, kom hópur skoskra sekkjapípuleikara gang- andi í þjóðbúningum yfir þveran leik- vanginn, léku skosk þjóðlög á hljóðfæri sín og staðnæmdust fyrir framan heið- ursstúkuna. Áhorfendurnir klöppuðu þeim lof i lófa, þeim fannst gaman að þessu og þeim mun fremur sem Skotarnir voru klæddir skrautlegum pilsbúningum sín- um, sem óvanalegt var að sjá á megin- landi Evrópu. Keppendurnir sex hættu að grafa. Þeir litu upp og horfðu kímileitir á þessa skringilegu hljómlistarmenn. Allir nema einn. Hann var alvarlegur á svip. Það var ekki laust við, að titringur færi um líkama hans, og væri vel að gáð, mátti sjá glampa í augum hans. Það var því líkast, að eittlhvað bærðist innra í þess- um manni, þegar hann heyrði landa sína leika ættjarðarsöngva. Hann stóð þarna meðal framandi þjóða, og allt í einu koma svo landar hans og minna hann á ættjörðina og að hægt sé að vinna henni heiður með því að leggja fram alla krafta sina. Þessi maður er séra Liddell frá Skot- landi — maðurinn, sem brá sér úr hemp- unni til þess að tklæðast hlaupabúningi á Olympíuleikvangi. Það, sem áhorfend- ur veittu sérstaklega athygli við þennan mann, var ekki hinn alvarlegi svipur hans, heldur hvað hann var hræðilega — eða öllu heldur hlægilega hjólbein- óttur. En nú var hlaupurunum skipað að vera tilbúnir, þeir beygðu sig niður, tylltu sér í viðbragðsholurnar og studdust létti lega fram á fingurgómana. Skot ríður af en ekki nema 6—8 metra, þegar annað af — hlaupararnir eru þotnir af stað — skot riður af. Það er merki þess að ein- hver hlauparanna hafi lagt of snemma af stað. Sökudólgurinn reyndist vera Imback, Svisslendingurinn, sem orðinn var eitthvað taugaóstyrkur eftir harða keppni undanfarinna daga. Vöðvakerfi hlauparanna sex slappast, Þeir hægja skyndilega ferðina, uns þeir staðnæmast alveg, snúa við og beygja sig niður við sprettlínuna að nýju. Á meðal áhorfenda rikir takmarka- laus spenningur, þögnin er svo djúp og mikil, að saumnál, sem fallið hefði úr nokkurra metra hæð, myndi hafa rofið hana. Það er þvi líkast sem hver og einn maður sé negldur niður, þar sem hann stendur. Það hreyfist hvorki leggur né liður — allt er kyrrt og hljótt sem í dauðra ríki. Ræsirinn lyfir hendinni. Hann er reiðu búinn að skjóta. Skotið riður af á næsta augnabliki — i þriðja sinn — og nú ríkir ekki lengur þögn á leikvanginum. Völl" urinn bergmálar allur og glymur af öskr- um og óhljóðum, húrrahrópum og hvatn- ingarorðum. Óheppnin hefur hent séra Liddell — mesta óheppnin, sem borið getur að höndum 400 metra hlaupara — það að lenda á ystu brautinni. Ekkert hlutskipti er til skelfilegra fyrir 400 metra hlaup- ara en að lenda á ystu braut. Þar með er honum gert að hlaupa, ekki lengri vegalengd en hinir, heldur erfiðari vega- lengd, þar sem hann einn sér ekki til neins keppinauta sinna, fyrr en þeir eru komnir fram úr honum, og úr því er vonlaust fyrir ystu brautar mann að sigra. Það glampar enn í augun á séra Liddell, og hann heldur bilinu jöfnu milli sín og næstu manna fyrstu 200 metrana. Það er ekki unnt að segja neitt um það, hver fyrstur verði. En þegar ko-mið var nokkuð á þriðja -hundrað metrana, varð ekki lengur um það villst, að séra Liddell myndi vinna það afrek í hlaupinu, sem engin dæmi voru til áður á þessari vegalengd. Þarna var undraverður hlaupari að leysa af hendi fáheyrt afrek í sögu iþróttanna. Svo frábærir voru yfirburðir hans, að jafnvel í bugðunum hljóp hann á miðri braut og skeytti engu að stytta sér beygjuna. Og þegar komið var á beinu brautina í endasprettinum, ihafði hann náð svo miklu forhlaupi fram yfir Fisch, sem næstur honum var, að sigurinn var honum sýnilega viss. Þótt Ameríkumenn á áhorfendapöllunum hrópuðu af lifs og sálarkröftum: „Ra-ra-ra, A-m-e-ríka, Fitch-Fitch-Fitch! — bar það engan á- rangur, séra Liddell herti sig bara bet- ur, og bilið milli hans og annarra keppi- nauta hans lengdist aðeins þeim mun meir. Skeiðtimi prestsins skoska var nýtt heimsmet, 47,6 sekúndur. Næstur honum varð Bandaríkjamaðurinn Fitch, þriðji Butter frá Englandi, fjórði Kanadamað- urinn Jo'hnston, en bæði fimmti og sjötti maður, Taylor frá Bandarikjunum og Imback frá Sviss duttu á hlaupabraut- inni, og enda þótt báðir risu eins og elding á fætur aftur, var það þó um seinan. Keppinautar þeirra voru komn- ir marga metra fram úr þeim, og það bil varð ekki jafnað á svo stuttu hlaupi. Þegar breski þjóðsöngurinn kvað við um endilangan völlinn fáeinum minút- um síðar, stóð séra Liddell á sigurpall- inum og söng fullum hálsi. Svipur -hans var jafnalvarlegur og þegar hann -hlust- aði á skosku þjóðlögin, áður en hlaupið hófst, hann var jafnáberandi hjólbein- óttur, og glampinn i augunum var sá sami. — En hann hafði unnið sigur fyrir ættjjörð sína, og hann fagnaði því -hennar vegna, að -honum auðnaðist að bera sigur úr býtum. Hann -hafði aldrei hlaup- ið með þvílíkum hraða áður á ævinni, og enginn hafði spáð honum sigri. Þess vegna varð sigurgleðin margföld á við það, sem annars -hefði orðið. En þetta var líka í síðasta skiptið, sem séra Liddell sást í hlaupabúningi. Hann skipti aftur -á íþróttafatnaðinum og prestshempunni, og fáeinum vikum seinna sigldi hann alfarinn til Kína. Þar starfaði hann sem trúboði í algerri kyrrþey, síðast er fréttist. ÍÞRÓTTAIVIENN! 39

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.