Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 3
Rritstjórnarspjall
1 H j|§jj{jf|f|
ÍÞRÓTTIR fir ÚTILÍF
Málgagn íþróttasambands tslands
Feróakostnaóur íþróiialólks
Einn erfiöasti hjallinn aö klífa fyrir íþrótta- og ungmennafélög-
in, héraðssambönd, sérsambönd og aöra aðila sem hafa meö
höndum íþróttaleg samskipti, er hinn mikli og vaxandi feröa-
kostnaöur.
Ritstjóri:
Sigurður Magnússon
Fulltrúi Frjáls Framtaks við útgáfuna:
Jón B. Pétursson
Skrifstofa ritstjórnar:
íþróttamiðstöðinni Laugardal
Útgefandi: Frjálst framtak hf.
Framkvæmdastjóri:
Engum dylst, aö íþróttaleg samskipti milli aöila innan lands og
viö önnur lönd, er nauðsynlegur liður í þróun íþróttanna, ef
einhver árangur á aö nást.
Heióarleg og drengileg keppni milli fjarlægra héraöa verkar
eins og vítamínsprauta, bæói fyrir keppendur og áhorfendur. En
aóstaóa einstakra byggóalaga til halda uppi reglubundnum
samskiptum viö aöra er æöi misjöfn. Ræöst þaö bæöi af miklum
fjarlægðum og fámenni, þó öllu meir af hinu fyrrnefnda.
Meö tilkomu deildarkeppnanna í knattleikjum og aukinni
Jóhann Briem
Skrifstofa og afgreiðsla:
Laugavegi 178
Símar 82300, 82302
Blaðið kemur út annan hvern mánuð
Árgjald kr 1770.00
Setning og umbrot:
Prentstofa G. Benediktssonar
Prentun: Fiafnarprent hf.
Héraðssambönd innan iSÍ:
Héraðssamband Snæfellsness- og
fjölbreytni í einstaklingskeppni, hefur orðið stórkostleg en jafn-
framt nauðsynleg aukning í feróalögum íþróttafólks. Þessi ferða-
lög eru óhemju dýr, fara síhækkandi og keyröi þó um þverbak
meö hinum svonefnda flugvallarskatti. Ekki liggja fyrir nákvæmar
tölur um feröakostnaó íþróttahreyfingarinnar í heild, en víst er aö
hann skiptir milljónatugum á hverju ári. Og flugvallaskatturinn
einn nemur mörgum milljónum.
Þaö væri fróðlegt út af fyrir sig aö vita hlutfallið á milli þess
sem íþróttahreyfingin fær í styrk frá ríkinu til starssemi sinnar og
þess, sem hún greiðir í flugvallarskatt. Minna má á í þessu
sambandi, aö t.d. greiðir 25 manna íþróttaflokkur sem þarf aö
fara milli Akureyrar og Reykjavíkur til aö keppa einn leik, kr.
17.500.00 í flugvallarskatt og færi samskonar hópur til norður-
landanna, greiddi hann kr. 62.500.00 í flugvallarskatt.
Þessi atriði þarf aó kanna niður í kjölinn svo unnt sé aö gera
sér grein fyrir málinu í heild.
Nýjar leriðrir?
Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
Héraðssamband Vestur-isfirðinga
Héraðssambandið Skarphéðinn
[þróttabandalag Akraness
íþróttabandalag Akureyrar
íþróttabandalag Hafnarfjarðar
Íþróttabandalag ísafjarðar
iþróttabandalag Keflavíkur
iþróttabandalag Ólafsfjarðar
iþróttabandalag Reykjavíkur
Íþróttabandalag Siglufjarðar
iþróttabandalag Suðurnesja
iþróttabandalag Vestmannaeyja
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands
Ungmennasamband A.-Húnvetninga
Ugmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Dalamanna
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalarnessþings
Ungmennasamband N.-Þingeyinga
Ungmennasamband Skagafjarðar
Ungmennasamband V.-Húnvetninga
Ungmennasamband V.-Skaftfellinga
Er hægt aö fara einhverjar nýjar leiðir til aö lækka ferðakostn-
aöinn? Getur íþróttahreyfingin meö því aö vera aðili aö rekstri
ferðaskrifstofu komist aö hagstæöari kjörum en fyrir hendi eru í
dag? Er hægt aö gera heildarsamninga fyrir hina mörgu en
dreifðu aöila?
Hugmyndir í þessum dúr hafa komiö fram í umræðum manna
á meöal og á fundum, en þær eru ókannaðar ennþá. Þaö viröist
þó augljóslega vera ómaksins vert aó kanna allar hugsanlegar
leiðir því aó miklir fjármunir eru í veði. Og ekki aöeins það,
heldur er líka um þaö aó ræöa, hvort og hvernig íþróttahreyfing-
in getur axlaó þá byrði sem fylgir því að halda uppi nauösynleg-
um íþróttalegum samskiptum, sem eins og áöur segir eru
afgerandi þáttur í eðlilegri þróun og framförum íþróttanna.
Ungmennasambandið Úlfljótur
Sérsambönd innan ÍSi:
Badmintonsamband islands
Blaksamband islands
Borðtennissamband Islands
Fimleikasamband Islands
Frjálsíþróttasamband íslands
Glímusamband Islands
Golfsamband íslands
Handknattleikssamband íslands
Júdósamband islands
Knattspyrnusamband Islands
Körfuknattleikssamband íslands
Lyftingasamband islands
Siglingasamband islands
Skíðasamband islands
Sundsamband islands
3