Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 23

Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 23
Valsmenn voru i miklum meirihluta við hringborðið þegar Iþr^Ma- blaðið kom þangað í heimsókn, en Fram átti þó sína tulljrua. Tatið^ frá vinstri: Axel Sigurðsson, postmaður; Jón Petur Jónssorí verzlunarmaður; Hörður H ilmarsson. kennari; Vilhjálmur K jartans- son, verzlunarmaöur, Þorsteinn Sivertsen. verzlunarmaður: Hall- dór Einarsson. iðnrekandi: Hermann Gunnarsson, skrifstofumaö- ur; Bergur Guðnason, lögfræðingur, Ölafur Jónsson, tollvörður og Guðmundur Frimannsson, endurskoðandi Guðmundur Frímannsson, Halldór Ein- arsson og Vilhjálmur Kjartansson. Þekkt nöfn í íþróttaheiminum okkar. Einn félag- anna er Ólafur Jónsson, tollvörður, for- maður handknattleiksdeildar Fram og Magnús Guðmundsson knattspyrnumark- vörður úr KR er sagður mæta, ef KR hefur unnið leik. — fylgdi það með sög- unni, að Magnús hefði komið afar sjaldan s.l. sumar. Þá eru þarna oftsinnis íþrótta- fréttamenn sumra dagblaðanna, og öðru hverju fær þessi virðulegi félagsskapur gesti í heimsókn. Sögðu þeir FfGP-menn að rnikil ásókn væri að komast inn í félagið, en inntökureglur hins vegar strangar og sniðnar við það að ekki verði fleiri í félaginu, en svo að hver og einn hafi a.m.k. pláss fyrir aðra rasskinnina á bekknum við hringborðið. Á „félagsfundunt" FÍGP sem haldnir eru oftar en í nokkru öðru félagi. eða a.m.k. fimm sinnum í viku, eru tekin til umræðu og meðferðar öll mál milli him- ins og jarðar. Þeir félagar láta sér ekkert mannlegt óviðkomandi, eins og þar stend- ur. Þannig voru t.d. hinar flóknu biðstöður í einvígi Fischers og Spasskís brotnar til mergjar á svipstundu, meðan á einvíginu stóð, enda þarna nokkrir ágætir skák- menn, félagar í hliðarklúbbi frá FÍGP sem nefnist Peðið. En oftast eru íþróttir og málefni tengd þeim efst á dagskránni. og fjallað um þessi efni bæði í léttum dúr og alvarlegum. Menn eru gjarnan ekki á eitt sáttir og sérstaklega ekki þegar enska knattspyrnan á í hlut. Líkur hörðum deilum oft með veðmálum, og er þá lögð brauðsneið eða brauðsneiðar undir. Færasti veðmangari FÍGP er Hermann Gunnarsson, enda kemur þar tvennt til. Annars vegar að hann er laginn að egna menn til brauð- sneiðaveðmála og svo hitt að uppáhaldslið hans, Manchester United, hefur átt mikilli velgengni að fagna að undanförnu. Eru það ófáar brauðsneiðar sem Hermann hefur sporðrennt út á sigra United. Segja félagar Hermanns í FlGP jafnan að nú sé komið að síðustu brauðsneiðinni sem Her- mann vinni á þennan hátt, og magna hrakspár til United, sem flestar hafa kom- ið fyrir lítið. Aðrir hafa vaðið fyrir neðan sig. Uppáhaldslið Bergs Guðnasonar er t.d. alltaf það lið sem er í forystu. Lenti Bergur í miklum erfiðleikum í fyrra þegar baráttan var mjög jöfn og tvísýn í ensku knattspyrnunni, og varð þá jafnvel að skipta um uppáhaldslið vikulega. Halldór Einarsson, sem rekur HENSON, sportvörugerðina, fær jafnan sinn skammt frá þeim FÍGP-mönnum. í fyrsta lagi fær Halldór góðar ráðleggingar við megrun, sem þeir FÍGP-menn segja að sé forsenda þess að hann fái þá ósk uppfyllta að komast í aðallið Vals að nýju, og í öðru lagi fær hann ýmsa sérfræðiupp- lýsingar um sportvörugerð. Sem kunnugt er gaf Halldór skozka liðinu Celtic bún- inga er það kom hingað til leiks við Val í Evrópubikarkeppninni á dögunum, og upplýstu FÍGP menn að búningar þessir hefðu hlaupið svo í þvotti, að þeir væru nú notaðir fyrir 5. flokkinn hjá Celtic. Þannig mætti lengi telja helztu ágreinings- 'málin hjá þeim FÍGP mönnum; Hver dagur bíður upp á ný umræðuefni og ný viðfangsefni til þess að brjóta til mergjar. Og meðan málin eru rædd rennur kaffið eða teið hennar Kristelar ljúflega niður en þeir FÍGP menn eru miklir vinir veitinga- fólksins í Tröð. 23

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.