Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 19
íþróttablaðinu berast ávallt bréf frá les-
endum. Ekki er hægt að birta þau öll og
sum eru of löng til að birta þau í heild og
verðum við þá að birta aðal innihald
þeirra. Nauðsyn er á að bréf til blaðanna
séu stutt. plássins vegna.
Þórður Jónsson í Laufahlíð, S—Þing.
sendi blaðinu línu fyrir all löngu og segir
m.a.:
„Verður mér fyrst fyrir að þakka marg-
breytilegt og skemmtilegt efni blaðsins á
s.l. ári þótt ég meti ekki það allt jafn
mikils. Sér í lagi segist hann vera ánægður
með efni eins og kynningu á UMSB,
frásögnina úr Hlíðafjalli, kvöldstund með
Clausenbræðrum, spjall við Herulf Clau-
sen og Tryggva í Miðdal. Myndir í blaðinu
telur Þórður sérlega góðar.
Þórður telur hins vegar vanta á nafna-
lista með hópmyndum og tekur undir
lesendabréf frá Hafnarfirði um að gera
unglingum vaxandi skil í blaðinu. Hlutur
auglýsinganna finnst honum of mikill, svo
sem hann hefur áður tekið fram.
Loks ræðir Þórður nokkuð um sund-
íþróttina, Islandssundið og Norrænu
sundkeppnina, og telur að þar hafi ýmis-
legt farið úrskeiðis og mun hann ekki einn
um þá skoðun. Hvetur hann íþróttablaðið
til að taka það mál fyrir. Skal því hér
skotið inn í, að á næstunni munum við
eiga samtal við Torfa Tómasson, form.
SSÍ, í þættinum „Hvar stöndum við“ og
gefst þá væntanlega tækifæri á að kryfja
málin nánar.
Sem dæmi um sundáhuga í heimasveit
Þórðar segir hann eftirfarandi dæmi úr
fslandssundinu 1974:
Meðal þeirra sem oftast syntu var ein
húsmæðranna í sveitinni. Þótt hún hefði
„nóg á sinni könnu“ heima fyrir með 7
manns í heimili, þ.á.m. 2 ungböm, vildi
hún ekki láta sinn hlut eftir liggja, heldur
gekk hún eða hljóp nær Vi km. vegalengd
til sundstaðarins næstum því daglega um
tveggja mánaða skeið og synti sína 200 m.
og oft lengra.“ — Geri aðrir betur.
Grunnskolí ISI
námsefni Grunnskólans og fór það
námskeið fram í íþróttamiðstöð ISI að
Laugarvatni.
Þar sem starfsemi Grunnskólans er
ný af nálinni, verður hún í náinni fram-
tíð í töluverðri mótun, en hér á við hið
fornkveðna, að hálfnað er verk þá hafið
er. Fjárhagsleg hlið í rekstri skólans er
einnig í nokkurri óvissu ennþá, en von-
andi tekst með samræmdum aðgerðum
að ráða fram úr þeirri hlið málsins.
Á myndinni hér að ofan eru þátttak-
endur ásamt kennurum á A-námskeiði,
er íþróttabandalag Reykjavíkur efndi til
s.l. vetur og var það haldið í menntaskól-
anum við Lækjargötu.
Myndin að neðan er hinsvegar frá
skólaslitum Gagnfræðaskólans í Hvera-
gerði þar sem útbreiðslustjóri ISI er að
afhenda þátttakendum viðurkenningar-
skjöl, en 10 nemendur skólans völdu sér
Grunnskóla ISI sem valgrein á s.l. vetri.
Fræðsluráð íþróttahreyfingarinnar
eru nú meira í brennidepli en oftast
áður, enda gera flestir sér orðið grein
fyrir því, að fjöldahreyfing á borð við
íþróttahreyfinguna verður ekki rekin
með tilætluðum árangri, nema til staðar
séu nógu margir aðilar, sem hafa bæði
vilja og getu til að sinna ábyrgðarmikl-
um störfum leiðbeinandans.
Starfræksla Grunnskóla ISI er einn
samræmdasti liðurinn í því að mennta
leiðbeinendur og þjálfara. Á sl. vetri
starfaði skólinn á 5 stöðum og luku 60
manns A-námskeiði skólans. Síðar eru
áformuð B- C- og D-stig fyrir fram-
haldsnám og verða þau væntanlega
haldin að mestu undir forsjá sérsam-
bandanna en að einhverju leyti í sam-
starfi við ISI. Á þessu hausti efndi I.S.I.
til samræmingarnámskeiðs fyrir þá
kennara. sem koma til með að kenna
19