Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 17
Fulltrúar ISI á fundi nefndarinnar. Forsetar fundarins voru Gísli Halldórsson og
Sveinn Björnsson og ritarar Bragi Kristjánsson og Sigurgeir Guðmannsson.
aukinna samskipta á íþróttasviðinu. Voru
fulltrúar allra landanna sammála um, að
lítið réttlæti væri ríkjandi í þeim efnum og
var samþykkt að taka upp viðræður við
fulltrúa norðurlandanna í Norðurlanda-
ráði um lagfæringar í þessum efnum.
Unglingaíþróttir — Skólaíþróttir.
Vaxandi samstarf hefur orðið á sviði
unglingaíþrótta meðal norðurlandanna og
var sú starfsemi tekin til sérstakrar um-
ræðu. Fléttuðust skólaíþróttir mikið inn í
þær umræður, en í flestum norðurland-
anna eru starfandi sérstök íþróttasambönd
fyrir skólana. Upplýst var, að hér á landi
hyggðist ISI beita sér fyrir stofnun sérstaks
íþróttasambands fyrir skólana sem yrði
aðili að eða starfaði í nánum tengslum við
ISI og íþróttahreyfinguna. Fulltrúar á
fundi samstarfsnefndarinnar þáðu boð
menntamálaráðherra, borgarstjómar
Reykjavíkur, íþróttabandalags Reykjavík-
ur, Flugleiða h.f. svo og heimboð forseta
Nordurlönddn
þinga í Reykjavík
Dagana 26.—28. ágúst s.l. var fundur
haldinn í Samstarfsnefnd fþróttasamband-
anna (Fælleskomite) á Norðurlöndum.
Nefndin heldur fundi reglulega annað
hvert ár til skiptis í aðildarlöndunum, sem
nú eru orðin 6, en Færeyingar voru teknir
inn sem sjálfstæðir aðilar á þessum fundi
og mælti Kurt Möller, form. danska
íþróttasambandsins, fyrir þeirri ákvörðun.
Sátu 3 Færeyingar fundinn að þessu sinni
og lýstu þeir bæði ánægju sinni og þakk-
læti með að vera orðnir aðilar að sam-
starfsnefndinni og kváðu þessa ráðstöfun
verða mjög mikilvæga fyrir uppbyggingu
íþróttastarfsins í Færeyjum.
Að venju voru gefnar ítarlegar skýrslur
á breiðum grundvelli um þróun og horfur í
íþróttastarfsemi hinna einstöku landa. Fer
ekki milli mála, að margvíslegar aðgerðir
íþróttasambandanna til að fá sem flesta til
að iðka íþróttir eða leggja stund á hvers-
kyns hreyfingu og útivist (TRIMM), hafa
borið verulegan árangur. Jafnframt gætir
vaxandi skilnings stjórnvalda og ráða-
manna á mikilvægi íþróttanna.
Mörg mál komu til kasta fundarins og
má í því sambandi nefna m.a. eftirfarandi:
Evrópuráðið í Strassburg.
Gefin var skýrsla um vaxandi afskipti
Evrópuráðsins í Strassburg af íþróttamál-
um og viðleitni ráðsins til að koma á
auknum samskiptum milli landanna í
íþróttum. Lýstu fundarmenn ánægju sinni
með, að Evrópuráðið lætur sig sífellt
meira og meira varða þessi mál með því
að stuðla að auknum og nánari samskipt-
um milli hinna einstöku landa, ekki síst að
því er varðar almanna íþróttir (Trimm).
Alþjóða Olympíunefndin.
Fjallað var á fundinum um skipan
alþjóða Olympiunefndarinnar og kom
fram af hálfu allra sem ræddu það mál, að
alþjóða Olympiunefndin væri skipuð með
óeðlilegum hætti og nauðsynlegt væri að
taka til endurskoðunar skipan hennar og
starfshætti.
Norðurlandaráð og íþróttirnar.
Fundurinn fjallaði um starfsemi menn-
ingarmálasjóðs Norðurlandaráðs og lýstu
menn sig óánægða með að sjóðurinn hefði
fram að þessu svo til enga aðstoð veitt til
ISI og konu hans. f móttöku hjá mennta-
málaráðherra, Vilhjálmi Hjálmarssyni
kom m.a. fram í ávarpi ráðherra, að hann
teldi það mjög þýðingarmikið að íþrótta-
samtökin stæðu dyggan vörð um sjálf-
stæði sitt og væru með öllu óháð öðrum
aðilum. Hlutverk ríkisins væri að styðja og
styrkja slík óháð samtök áhugamanna en
ekki að seilast eftir að stjóma þeim eða
ráða.
Daginn eftir að ráðstefnunni lauk fóru
þátttakendur í kynnisferð á vegum ISI til
nokkurra staða utan Reykjavíkur og komu
þá m.a. við í Austurkoti í Flóa til að sjá
þar og kynnast íslenzka hestinum. Við það
tækifæri flutti Árni Bjömsson læknir er-
indi um íslenska hestinn, hlutverk hans
fyrr og nú og birtist útdráttur úr því
annars staðar í blaðinu.
Næsti fundur samstarfsnefndarinnar
verður haldinn í Danmörku 1977.
Myndin er af þátttakendum á fundi Samstarfsnefndar íþróttasambandanna á
Norðurlöndum og er tekin utan við Hótel Loftleiðir, þar sem fundir voru haldnlr.
17