Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 27
Skulda-
bagginn
meiri en
veltan
R»U Yíd Torf a
Tómasson lormann
Sundsambands
íslands
Sundsamband Islands er eitt þeirra sér-
sambanda innan íþróttasambands fslands
sem á í hvað mestum fjárhagserfiðleikum.
Mestur hluti þess tíma sem stjórnarmenn
Sundsambandsins fóma fyrir þetta áhuga-
mál sitt fer í það að safna peningum og
reyna að grynnka á skuldunum þannig að
íslenzk sundæska fái aukin tækifæri til að
etja kappi við erlendar þjóðir.
Það er bæði lýjandi og leiðinlegt að
standa í því ár eftir ár að reyna að kría út
peninga til að endarnir nái saman, sagði
Torfi Tómasson formaður Sundsambands
fslands er við ræddum við hann á dögun-
um. — Samt sem áður er bjart yfir framtíð
sundíþróttarinnar á íslandi og ég er þess
fullviss að næstu ár verður bjart yfir
sundíþróttinni hér á landi.
Sundsamband fslands hélt ársþing sitt í
ágústmánuði síðastliðnum og voru þar
mörg mál og merk til umræðu. Fjármálin
voru þó efst á baugi og ekki undarlegt
þegar þess er gætt að skuldabagginn sem
Sundsambandiðburðast með hljóðar upp á
rúmlega tvær milljónir króna, en velta
Sundsambandsins síðastliðið starfsár var
um 1.1 milljón. — Ég held að fólk geri sér
ekki almennt grein fyrir því hversu gífur-
legur kostnaður er því samfara að taka
þátt í alþjóðlegu íþróttastarfi, sagði Torfi
Tómasson.
— Við höfum reynt að taka á hverju ári
Nú grennum
við okkur
Nýtt 4ra vikna námskeið í hinni árangursríku megrunarleikfimi
okkar hefst fyrsta hvers mánaðar. Þetta námskeið er fyrir
konur sem þurfa að léttast um 15 kg eða meira. Hinn góði
árangur okkar næst með: 1. flokks leikfimikerfi — úrvals
megrunarmataræði — sérstök megrunarnudd. Læknir fylgist
með árangrinum. Vigtun, mæling, gufa, ljós, kaffi. Öruggur
árangur ef viljinn er með. Innritun og upplýsingar í síma 83295
alla virka daga kl. 13—22.
Júdódeild Ármanns.
Japanski þjálfarinn Naoki Murata 4 DAN
þjálfar í öllum flokkum. Innritun og upplýsingar
í síma 83295 alla virka daga frá kl. 1 3—22
JÚDÓDEILD ÁRMANIMS
27