Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 33
18.
olym-
píu-
leikar
nútím
ans
Framhald af bls. 2 5
HNEFALEIKAR:
Hnefaleikakeppni Olympíuleikanna
mun taka mjög mikinn tíma, enda búizt
við metþátttöku. Fyrsti keppnisdagurinn
verður sunnudagurinn 18. júlí, en síðan
verður keppt daglega fram til 31. júlí.
Verða keppnisdagar alls 13.
HÚÐKEIPARÓÐUR:
Keppni í húðkeiparóðri mun aðeins
standa í fjóra daga, enda þarna um að
ræða keppnisgrein sem jafnan er fremur
takmörkuð þátttaka í. Keppnin hefst 28.
júlí og lýkur 31. júlí.
HJÓLREIÐAR:
Kanadamenn hafa reist mjög vönduð
og mikil mannvirki vegna hjólreiðar-
keppninnar og eru þau nú komin lengst á
veg allra íþróttamannvirkjanna vegna
leikanna í Montreal. Hjólreiðakeppnin
hefst 18. júlí og lýkur 26. júlí. Tvo daga á
þessu tímabili verður þó ekki keppt, þann-
ig að keppnisdagar eru alls 7.
HESTAMENNSKA:
Keppni í hestamennsku mun standa í
samtals níu daga. Hefst hún 22. júlí og
lýkur á lokadegi leikanna, 1. ágúst. Verður
hestamennska eina keppnisgreinin á þeim
degi.
SKYLMINGAR:
Skylmingakeppni mun taka 10 daga.
Hún hefst þriðjudaginn 20 júlí og verður
síðan keppt daglega fram til 29. júlí.
KNATTSPYRNA:
Umfangsmikil undankeppni hefur þeg-
ar farið fram, þannig að það verða aðeins
fáir útvaldir sem komast til Kanada.
Fyrsti keppnisdagur í knattspyrnunni
verður sunnudagurinn 18. júlí, en úr-
slitaleikurinn mun fara fram 31. júlí. Alls
verða keppnisdagar 10.
FIMLEIKAR:
Segja má, að keppni í fimleikum hafi
unnið hug og hjörtu áhorfenda á Olym-
píuleikunum í Munchen 1972, og með
tilliti til þess hve íþróttagrein þessi naut
þar mikilla vinsælda munu Kanadamenn
leggja áherzlu á að búa sem bezt að bæði
keppendum og áhorfendum þessarar
íþróttagreinar. Keppnisdagar verða alls 6.
Sá fyrsti 18. júlí og sá síðasti 23. júlí.
HANDKNATTLEIKUR:
Líkt og í öðrum knattíþróttum hefur
undankeppni farið fram, er til leikanna
sjálfra kemur. Olympíuleikarnir í Montre-
al marka tímamót í handknattleikskeppn-
inni að því leyti að þar verður í fyrsta sinn
keppt í handknattleik kvenna. Fyrsti
keppnisdagurinn verður 18. júlí, en úr-
slitaleikurinn mun fara fram 28. júlí.
Keppnisdagar eru alls 7.
HOKKÍ:
Keppni í landhokkí mun taka 11 daga.
Fyrsti keppnisdagurinn verður 18. júlí, en
síðan verður keppt alla daga fram til 31.
júlí, að tveimur dögum, 26. og 27. júlí
undanskildum.
JÚDÓ:
Búizt er við mjög aukinni þátttöku í
júdókeppni Olympíuleikanna og því
keppninni gefinn meiri tími en verið hefur
til þessa eða alls 6 dagar. Hefst júdó-
keppnin mánudaginn 26. júlí og lýkur 31.
júlí.
NÚTÍMA FIMMTARÞRAUT:
Margir hafa orðið talsmenn þess að
keppni í þessari íþróttagrein yrði lögð
niður á Olympíuleikunum, en svo varð þó
ekki að þessu sinni. Keppni mun hefjast
18. júlí og verður síðan keppt í einni grein
á dag og lýkur því keppninni 22. júlí.
RÓÐUR:
Aðstaða til róðrarkeppninnar verður
mjög góð í Kanada, og á keppni í hinum
mismunandi greinum íþróttarinnar að
fara fram á samtals 8 dögum. Fyrsti
keppnisdagur verður sunnudagurinn 18.
júlí, en 25. júlí verður lokadagur róðra-
manna.
SKOTFIMI:
Vegna atburða þeirra er urðu á Olym-
píuleikunum í Munchen 1972, munu regl-
ur vegna skotkeppninnar í Montreal verða
mjög strangar. Þannig fá keppendur t.d.
ekki að flytja með sér skotvopn sín til
Kanada, heldur verða þau að fara þangað
eftir öðrum leiðum. Skotkeppnin mun
taka sjö daga. Hefst 18. júlí og lýkur 24.
júlí.
SUND:
Næst á eftir frjálsum íþróttum er sund-
keppnin það sem hæst ber á Olympíuleik-
um. Keppnin á að hefjast 18. júlí og
verður síðan keppt á hverjum degi fram til
27. júlí eða í 10 daga alls.
BLAK:
Keppt er bæði í karla- og kvennaflokki
í blaki, og taka þau lið þátt í keppninni
sem unnið hafa sér rétt með sigri í undan-
keppninni. Blakkeppnin mun taka alls 12
daga. Fyrstu leikirnir fara fram 18. júlí, en
úrslitaleikirnir fara fram 30. júlí.
LYFTINGAR:
Sem kunnugt er fer lyftingakeppnin
fram í mörgum þyngdarflokkum. Keppni
í léttasta flokknum hefst 18. júlí, en 27.
júlí mun stærstu og sterkustu mennimir
stíga á pall. Alls eru keppnisdagar í þessari
íþróttagrein 9.
GLÍMA:
Glímukeppnin mun taka 10 daga. Hún
hefst 20. júlí og lýkur næst síðasta dag
leikanna 31. júlí. Tvo daga, 25. og 26. júlí
verður þó gert hlé á keppninni.
SIGLINGAR:
Siglingakeppnin mun fara fram í King-
ston á Ontario vatni. Hún hefst 19. júlí og
lýkur 26. júlí — stendur í 7 daga alls.
SLIT:
Lokaathöfn leikanna á að verða með
hefðbundnum hætti og fer hún fram
sunnudaginn 1. ágúst.
33