Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 7
|— ÍÞRÓTTABLA ÐIÐ -i
íþróttir og útilíf
Málgagn íþróttasambands íslands
Ritstjóri:
Steinar J. Lúðvíksson
Skrifstofa ritstjómar:
íþróttamiðstöðinni Laugardal
Útgefandi: Frjálst framtak hf.
Framkvæmdastjóri:
Magnús Hreggviðsson
Auglýsingastjóri:
Sigurður Bjamason
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300, 82302
Setning, umbrot, filmuvinna og prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar
Bókband: Félagsbókbandið hf.
Litgreining Kápu: Korpus hf.
Héraðssambönd innan ÍSÍ:
Héraðssamband Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga
Héraðssambandið Skarphéðinn
íþróttabandalag Akraness
íþróttabandalag Akureyrar
íþróttabandalag Hafnarfjarðar
íþróttabandalag ísafjarðar
íþróttabandalag Keflavíkur
íþróttabandalag Ólafsfjarðar
íþróttabandalag Reykjavíkur
íþróttabandalag Siglufjarðar
íþróttabandalag Suðumesja
íþróttabandalag Vestmannaeyja
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands
Ungmennasamband A-Húnvetninga
Ungmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Dalamanna
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalamessþings
Ungmennasamband Skagafjarðar
Ungmennasamband V-Húnvetninga
Ungmennasamband V-Skaftfellinga
Ungmennasambandið Úlfljótur
Ungmennasamband N-Þingeyinga
Sérsambönd innan ÍSÍ:
Badmintonsamband íslands
Blaksamband íslands
Borðtennissamband íslands
Fimleikasamband íslands
Frjálsíþróttasamband íslands
Glímusamband íslands
Golfsamband íslands
Handknattleikssamband íslands
íþróttasamband fatlaðra
Júdósamband íslands
Knattspymusamband íslands
Körfuknattleikssamband íslands
Lyftingasamband íslands
Siglingasamband íslands
Skíðasamband íslands
Skotsamband íslands
Sundsamband íslands
Ritstjórnarspjall
Margt áunnist
— mikið ógert
Þótt mörgum viröist að hægt gangi í uppbyggingu íþróttamannvirkja
og að stuðningur opinberra aðila við íþróttastarfið og íþróttahreyfinguna
sé smánarlega lítill, verðurekki horftfram hjá þeirri staðreynd að veruleg
umskipti til hins betra hafa orðið á síðustu tveimur áratugum. íþróttaað-
staða hefur batnað til mikilla muna víðast hvað á landinu, og sérstaklega
verður að geta um þau fjölmörgu íþróttahús sem risið hafa. Sennilega er
fáum opinberum byggingum tekið með eins miklum fögnuði og íþrótta-
húsunum sem jafnan eru þétt setin frá morgni til kvölds og komast þar
raunar færri að en vilja. Með íþróttahúsunum skapast aukinn almennur
áhugi á íþróttum og afrek keppnisfólksins batna. Unnt væri að nefna
mörg dæmi þessu til sönnunar, en látið skal nægja að benda á viðtöl við
forsvarsmenn körfuknattleiksíþróttarinnar í Keflavík sem birtast í þessu
íþróttablaði.
Þótt mikið hafi áunnist þegar á heildina er litið er jafnljóst að verkefnin
sem eftir eru verða að teljast risavaxin. Það er enn langt íland að aðstaða
íþróttafólks og þeirra sem vilja stunda íþróttir sér til ánægju og heilsu-
bótar sé nægjanlega góð og mikil. Reyndar er þetta mjög mismunandi
eftir bæjarfélögum. Sum hafa lagt metnað sinn í það að hlúa að íþrótta-
félögum og íþróttahreyfingunni og hafa haft fullan skilning á mikilvægi
íþróttanna sem æskulýðs- og félagshreyfingar, en önnur sveitarfélög
hafa látið sig þetta ótrúlega litlu varða og sýnt bæði þröngsýni og
skammsýni við gerð íþróttamannvirkja og stuðning við íþróttahreyfing-
una.
Það er mikilvægt að forsvarsmenn bæjar- og sveitarfélaga hafi það í
huga þegar ráðskast er með fjármagn skattborgaranna að íþróttahreyf-
ingin er fjölmennasta og öflugasta félagshreyfingin á íslandi og það er
nánast ekki til sú fjölskylda á íslandi sem tekur ekki þátt í íþróttastarfi á
beinan eða óbeinan hátt. í íþróttastarfið sækja tugþúsundir ungmenna í
tómstundum sínum og mörg hver eyða þar megin hluta þess tíma sem
gefst frá námi eða starfi. Það er því mikilsvert að unnt sé að koma á móts
við þennan fjölmenna hóp. Láta hann finna að vilji sé fyrir hendi að búa
vel að honum og hvetja til áframhaldandi starfs. I íþróttahreyfingunni er
ótrúlegur fjöldi fólks sem vinnur sjálfboðastörf fyrir hreyfinguna af mikilli
fórnfýsi og ósérhlífni. Það þarf líka að láta það fólk finna að starf þess sé
metið. Þetta er fólk sem ekki er bara að vinna fyrir sig og sína nánustu,
heldur leggur það hönd á plóginn við að beina æsku landsins inn á
heillavænlegar brautir, og opnar augu hennar fyrir því að íþróttirnar eru
ekki bara leikur, heldur miða þær að því marki að auka heilbrigði og
hreysti.
7