Íþróttablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 27
heldur ekki gleyma Pétri Péturs-
syni sem er að ná sér á strik með
hinu nýja félagi sínu, FC Ant-
werpen.
Síðasta keppnistímabil
1980-1981 var sannkallað sigurár
hjá Standard Liege, og þótti vel-
unnurum félagsins tírni til kom-
inn að félagið næði alla leið á
toppinn. Segja má að fyrsta
skrefið hafi verið stigið er félagið
varð bikarmeistari 1980, en það
fylgdi þeim sigri glæsilega eftir
og hreppti meistaratitilinn í
Belgíu í ár. En það voru fleiri lið
frá Liege sem spjöruðu sig en
Standard. FC Seranin sigraði í 2.
deildar keppninni og FC Liege
stóð sig betur en í mörg undan-
farin ár, en það félag hefur verið
að berjast á botninum í 1. deild-
inni í hartnær áratug. Þar með
voru hvorki fleiri né færri en þrjú
lið frá sömu borginni í 1. deild-
inni, og í hópi þeirra var meira að
segja meistarliðið.
Vafalaust hafa það verið von-
brigði fyrir Ásgeir Sigurvinsson
að vinna aldrei til nreistaratitils-
ins í þau sjö ár sem hann var hjá
Standard Liege. Segja má þó að
Ásgeir eigi óbeint þátt í sigri
Standard Liege í keppninni í
fyrra. Hann var seldur til Bayern
Múnchen fyrir hærri upphæð en
gengur og gerist í knattspyrnunni
í Belgíu, og það varð til þess að
forráðamenn Standard voru allt í
einu með fulla vasa af peningum
og gátu farið að höndla leikmenn
eins og þeim sýndist. Meðal
þeirra sem félagið keypti var hinn
frægi leikmaður Arie Haan sem
kom til félagsins frá erkióvinin-
um Anderlecht. Þá keypti félagið
einnig Willy Geurts sem skorað
hafði öll þrjú mörkin í 3-1 sigri
Anderlecht yfir Juventus í
Evrópubikarkeppninni og Heinz
Grundel, sem áður hafði leikið
með Waterschei og átti stórleik
með liðinu er það varð bikar-
meistari 1981. Grundel telst
raunar vera Belgíumaður þegar
höndlað er með hann, þar sem
Pétur Pétursscm — fór fyrst til
Anderlecht en síðan til Andwerp-
en.
hann hefur leikið í Belgíu í fimm
ár.
Harður slagur
Eins og oft áður er búist við því
að aðalslagurinn í belgísku
knattspyrnunni í ár standi milli
Anderlecht og Standard Liege,
en mikill félagarígur er á milli
þessara tveggja félaga — meiri
en gengur og gerist. Sagt er að
þeir Anderlecht — menn séu
ekkert ósáttir við það þótt félagið
þeirra sé ekki á toppnum á hverju
ári, svo fremi sem það sé ofar á
blaði en Standard Liege.
Ástæðurnar fyrir togsreitunni
milli Anderlecht og Standard
Liege eru margar, en fyrst og
fremst eru þær þó af þjóðernis og
tungumálalegum toga spunnar.
Hjá Anderlecht eru fleiri leik-
menn, allir stjórnendur og þorri
áhangenda frönskumælandi og
slnna. en þeir leikmenn sem hann heldurekki uppá eiga erfitt uppdráttar
hjá félaginu.
27