Íþróttablaðið - 01.12.1982, Side 10
A heimavelli
Örn
Óskarsson
til
Víkings?
Kvissast hefur að tveir
landsliðsmenn í knattspymu
utan af landsbyggðinni hyggi á
félagaskipti yfir í lið af Stór-
reykjavíkursvæðinu í kjölfar
búferlaflutnings til Reykjavík-
ur. Þetta eru þeir Öm Óskars-
son Vestmannaeyjunr og Ak-
ureyringurinn Gunnar Gísla-
son, báðir geysisterkir leik-
menn og um margt líkir, þótt
þeir séu staddir hvor á sínum
enda knattspyrnuferilsins. Örn
er a.m.k. kominn á scinni
hlutann, þó vissulega geti hann
styrkt hvaða 1. deildar lið sem
er í 5 ár enn. Gunnar er rétt
rúmlega tvítugur og þrátt fyrir
töluverða reynslu er hann
byrjandi sem landsliðsmaður,
en kom sem slíkur mjög á
óvart í sumar.
Ekki er útséð um það hvaða
lið hreppa kappana, en þau
munu mörg hafa hug á því,
enda eru þeir báðir annálaðir
baráttujaxlar með mikið
keppnisskap. Helst er hallast
að því að Örn Óskarsson gangi
til liðs við íslandsmeistara
Víkings, en þeirra vinstri bak-
vörður í áraraðir, Magnús
Þorvaldsson, hefur tilkynnt að
hann sé hættur að æfa og leika
með meistaraflokki og er þar
skarð fyrir skildi. Gunnar
Gíslason hefur aftur á móti
einna helst verið orðaður við
Breiðablik, en Magnús Jóna-
tansson hinn nýi þjálfari Blik-
anna hefur lagt hart að Gunn-
ari að ganga yfir í Breiðablik.
Joann Ingi til
Danmerkur?
Eins og flestir munu eflaust
minnast stóð Jóhanni Inga
Gunnarssyni það til boða að
gerast landsliðsþjálfari Dana í
handknattleik, en ekki náðust
samningar um kaup og kjör.
íþróttablaðið hefur fregnað að
Danir fylgist mjög náið með
Jóhanni Inga sem nú þjálfar í
Vestur-þýskalandi og þeir séu
ekki búnir að gefa upp vonina
að fá hann til sín sem þjálfara
þótt síðar verði. Ljóst er að ef
svo heldur sem horfir hjá
Jóhanni Inga í Þýskalandi
verð honum allir vegir færir
sem þjálfara í framtíðinni, en
óneitanlega væri það saga til
næsta bæjar ef íslendingur
gerðist danskur landsliðsþjálf-
ari.
10