Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 39
hann heldur en gert er á Islandi.
Sóknarleikurinn er eins og við
þekkjum hann, að mestu leyti
frjáls, en sóknirnar eru gjarnan
lengri en algengt er hjá íslenskum
liðum, menn Jiggja nreira á
boltanum.“ Munurinn er þó
mestur í varnarleiknum og
markvörslunni, og til gamans má
geta þess að það er krafa til
markvarðar að þeir verji a.m.k.
8-10 skot í leik úr svo kölluðum
„dauðafærum,“ þ.e. línuskot,
vítaskot og hraðaupphlaup.“
„Hef áhuga á að vera
eitt ár í viðbót
Bjarni Guðmundsson hefur
sem kunnugt er staðið sig nrjög
vel í vetur með liði sínu, Nettle-
stedt. Hann eryfirleitt inná allan
leiktímann og skoraði 31 mark í
fyrstu 9 leikjunum, eða rúmlega
þrjú mörk að meðaltali sem er
góður árangur hjá hornamanni.
En hvað hefur hann sjálfur að
segja um eigin frammistöðu og
framtíðarplönin í handboltan-
um?
„Mestan muninn frá því sem
áður var finn ég í sambandi.við
varnarleikinn. Ég var vanur að
leika ystur í vörninni, þ.e. í horn-
inu, en er nú oftast bakvörður.
Við leikum varnarkerfi sem kall-
ast 3-2-1, en það þýðir að bak-
verðirnir eru mjög framarlega og
á mikilli „keyrslu“ allan tímann.
Þar sem ég fæ sjaldnast hvíld í
leikjunum er um mikið álag að
ræða, og satt best að segja hef ég
verið töluvert þreyttur að undan-
förnu, einkum í fótunum. En það
lagast fljótt.
Varðandi áframhaldandi dvöl
hérna í Þýskalandi, þá er á döf-
inni eða búið að setja reglur um
það að hvert lið í „Bundesling-
unni“ megi aðeins nota einn út-
lending á næsta keppnistímabili.
Það er að sjálfsögðu hið mikla at-
vinnuleysi í V-Þýskalandi sem
þessu veldur. Ég hef því eingöngu
sett stefnuna á næsta sumar og
ætla þá að sjá til hvernig málin
standa. Ef allt gengur samkvæmt
áætlun og Nettlested heldur sæt-
inu í 1. deildinni er sú löngun
vissuleg fyrir hendi að vera í eitt
ár til viðbótar í Þýskalandi, en
það kemur allt í ljós síðar.“
Landsleikir og
markaskorun
Bjarni hefur nú um langt árabil
verið fastur maður í íslenska
landsliðinu í handknattleik og
hefur þótt ótrúlegt sé leikið 115
landsleiki, aðeins 25 ára að aldri.
Aðeins tveir handknattleiksmenn
eiga fleiri landsleiki að baki, Geir
Hallsteinsson með 118 leiki og
Ólafur H. Jónsson sem leikið
hefur 138 leiki með landsliðinu.
Allt bendir til þess að Bjarni-
fari fram úr Geir fyrir áramótin
og ef ekkert óvænt kemur uppá
setur Bjarni nýtt landsleikjamet
fljótlega, jafnvel innan árs. í
leikjum sínum með landsliðinu
hefur Bjarni skorað 289 mörk og
er í 5. sæti á lista yfir þá menn
sem flest mörk hafa skorað í
Bjarni sloppinn inn úr horninu og skimar eftir samherja á línunni til að
gefa á hann.
39