Íþróttablaðið - 01.12.1982, Side 45
Á að baki ólíkan
feril við flesta
kappakstursmenn
Tímamót urðu í heims-
meistarakeppninni í kapp-
akstri í ár. í fyrsta sinn í
sögu Grand Prix kappakst-
ursins hreppti Norður-
landabúi heimsmeistaratit-
ilinn. Sá var Finninn Keke
Rosberg og kom það víst
flestum verulega á óvart að
hann skyldi ná svo langt.
Þótti Rosberg vel að titlin-
um kominn. Hann sýndi
mikið öryggi og hæfni í öli-
um kappakstursmótum
keppnistímabilsins. Sigraði
reyndar ekki nema einu
sinni, í GP í Sviss, en varð
fjórum sinnum í öðru sæti
og tvívegis í þriðja sæti.
Keke Rosberg er aðeins 34
ára að aldri og á því vafa-
laust glæsilega framtíð fyrir
sér í kappakstrinum, þar
sem margir ná ekki sínum
besta árangri fyrr en um
fertugt.
Keke Rosberg er dæmi um
mann sem veit hvað hann vill.
Hann braust sjálfur áfram —
hafði engan fjársterkan mann á
bak við sig eins og margir kapp-
aksturskappanna sem lengst hafa
náð. Faðir Rosbergs er dýra-
læknir í Finnlandi, og hefur rétt
sæmilegar tekjur. Hann var
heldur á móti kappakstursbrölti
sonar síns og veitti honum engan
stuðning að komast áfram. Keke
Rosberg byrjaði á formúla 3 bif-
reiðum, náði árangri og tókst
smátt og smátt að vinna sig upp.
Enginn veitti honum þó verulega
athygli og honum gekk ekkert
alltof vel að fá sæmilega keppn-
isbifreið, eða . peningamenn til
þess að styðja sig. Rosberg þótti
þó einkar ráðdeildarsamur og
tókst að koma undir sig fótunum
og verða fjárhagslega sjálfstæður.
Keke Rosberg fékk sitt stóra
tækifæri í fyrra þegar Frank
Williams hringdi til hans og
spurði hvort hann væri fáanlegur
til þess að reyna nýja gerð Willi-
ams bíla á Paul Ricard brautinni í
Suður-Frakklandi. Áður hafði
Williams haft samband við aðal-
kappaksturmenn fyrirtækis síns
þá Alan Jones og Carlos Reute-
mann, en hvorugur þeirra hafði
sýnt nýja bílnum mikinn áhuga
og töldu öll tormerki á að koma
og reyna hann. Þá lá einnig ljóst
fyrir að ekki var víst að Jones og
Reutemann vildu endurnýja
samninga sína við fyrirtækið og
Williams stóð því hálfvegis uppi
án góðra ökumanna.
Frank Williams varð ekki fyrir
vonbrigðum með Keke Rosberg.
Hann sýndi ótvíræða hæfileika,
ekki aðeins sem ökumaður,
heldur benti hann á fjölmörg
atriði sem hann taldi að þyrfti að
lagfæra í bifreiðinni til þess að
hún gæti orðið samkeppnishæf
við það besta á makaðnum.
Tekið var tillit til þess sem hann
sagði og smátt og smátt varð bíll-
inn fyrsta flokks. Og það sem
meira var: Frank Williamshikaði
ekki við að bjóða Keke Rosberg
samning, jafnvel þótt hann vissi
Þannig
vann
Rosberg
titilinn
Fyrsti norræni heimsmeistar-
inn í kappakstri. Fæddur 6. des-
ember 1948 í Finnlandi þar sem
faðir hans er dýralæknir. Býr nú í
Cookham Dean, Berks í Eng-
landi, Monaco og á Ibiza. Keppti
í fyrsta skipti í formúla 1 kapp-
astri árið 1978 og þá í Suður-
Afríku á Theodore-bíl. Hann
hefur tekið þátt i 51 Grand Prix
kappakstri og einu sinni unnið
sigur. Hann er ókvæntur og
barnlaus.
Þannig vann Keke Rosberg
heimsmeistaratitilinn:
GP Suður-Afríku Nr. 5
GP Basilíu Nr. 2
GP Bandaríkjunum Nr. 2
GP San Marion Nr. -
GP Belgíu Nr. 2
GP Monaco Nr. -
GP Detroit Nr. 4
GP Kanada Nr. -
GP Hollandi Nr. 3
GP Englandi Nr. -
GP Frakklandi Nr. 5
GP V-Þýskalandi Nr. 3
GP Austurríki Nr. 2
GP Sviss Nr. 1
GP Ítalíu Nr. -
GP Las Vegas Nr. 5
45