Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 7

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 7
r- ÍÞRÓTTABLAÐIÐ ~i iþróttir og útilíf Málgagn íþróttasambands íslands Ritstjóri: SteinarJ. Lúðvíksson Skrifstofa ritstjómar: íþróttamiðstöðinni Laugardal Útgefandi: Frjálst framtak hf. Stjómarformaður: Magnús Hreggviðsson Auglýsingastjóri: Lilja Hrönn Hauksdóttir Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18 Símar 82300, 82302 Áskriftarverð kr. 246.00 (hálft ár) Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Prentstofa G. Benediktssonar Litgreining kápu: Prentmyndastofan Héraðssambönd innan ÍSÍ: Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu Héraðssamband Strandamanna Héraðssamband Suður-Þingeyinga Héraðssamband Vestur-ísfirðinga Héraðssambandið Skarphéðinn íþróttabandalag Akraness íþróttabandalag Akureyrar íþróttabandalag Hafnarfjarðar íþróttabandalag ísafjarðar íþróttabandalag Keflavíkur íþróttabandalag Ólafsfjarðar íþróttabandalag Reykjavíkur íþróttabandalag Siglufjarðar íþróttabandalag Suðurnesja íþróttabandalag Vestmannaeyja Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands Ungmennasamband A-Húnvetninga Ungmennasamband Borgarfjarðar Ungmennasamband Dalamanna Ungmennasamband Eyjafjarðar Ungmennasamband Kjalamessþings Ungmennasamband Skagafjarðar Ungmennasamband V-Húnvetninga Ungmennasamband V-Skaftfellinga Ungmennasambandið Úlfljótur Ungmennasamband N-Þingeyinga Sérsambönd innan ÍSI: Badmintonsamband íslands Blaksamband íslands Borðtennissamband íslands Fimleikasamband íslands Frjálsíþróttasamband íslands Glímusamband íslands Golfsamband íslands Handknattleikssamband íslands íþróttasamband fatlaðra Júdósamband íslands Knattspymusamband íslands Körfuknattleikssamband íslands Lyftingasamband íslands Siglingasamband íslands Skíðasamband íslands Skotsamband íslands Sundsamband íslands Rit s t j órnarsp j all Atvinnumennirnir og knattspyrnulandsliðið íþróttablaðið birtir að þessu sinni viðtöl við tvo af kunnustu atvinnu- knattspyrnumönnum íslendinga. þá Ásgeir Sigurvinsson og Arnór Guð- johnsen. Meðal þess sem ber á góma er viðhorf þeirra til íslenska knatt- spyrnulandliðsins. en báðir lýsa þeir yfir áhuga sínum á því að leika með því hvenær sem færi gefast. Það kemur hins vegar glögglega fram í viðtölunum að þeir félagar eiga við ramman reip að draga. Félög þeirra eru ekki ginkeypt fyrir því að láta þá lausa í knattspyrnulandsleiki. og hafa greinilega þau viðhorf að þau hafa keypt þessa leikmenn dýrum dómum og vilja halda þeim hjá sér. Það er orðið næsta fátítt að íslendingar geti teflt fram sínu besta liði í knattspyrnulandsleikjum. Er þar átt við að sjaldan stendur svo á að þeir atvinnumenn sem landsliðsþjálfarinn vill fá í leikina eigi heimangengt á sama tíma. Þetta hefur skapað ýmis vandamál. svo og það að þótt atvinnumennirnir geti tekið þátt í landsleikjunum gefst þeim oftast lítill tími til samæfinga með öðrum leikmönnum. Afleiðing þessa verður svo sú. að oftast er samæfing landsliðsmanna í lágmarki þegar að leikjunum kemur og því í raun og veru stórkostlegt hve árangurinn hefur verið góður á undanförnum árum. íslendingar eru ekki einir um að eiga við slík vandamál að etja. Nær öll Norðurlöndin eiga sína bestu knattspyrnumenn í atvinnuliðum í Evrópu og eiga erfitt með að smala þeim saman. Þar sem breiddin er meiri en hér á íslandi kemur þetta minna að sök, og þargeta landsliðsþjálfararnir leyft sér að taka upp hálfgerða ..harðlínu" sem hefur orðið til þess að at- vinnumennirnir leggja allan metnað sinn íað leika með landsliðunum. En þar eru líka peningar í boði. — landsliðsleikmenn fá greitt fyrir að taka þátt í leikjum. en það er nokkuð sem ekki er sýnilegt aó verði hægt á Islandi í náinni framtíð. Margir íslenskir atvinnumenn leggja hart að sér til þess að leika með íslenska landsliðinu og sýna þannig bæði vilja og þegnskap. Má nefna sem dæmi er þeir Atli Eðvaldsson og Pétur Ormslev fóru dagfari og náttfari til þess að taka þátt í landsleik við Möltu í vor. Auðvitað er slíkt einnig tvíeggja. Það þarf mikið til þess að taka þátt í erfiðum leik með félagi sínu og koma svo um langan veg til þess að taka þátt í landsleik daginn eftir. Það er líka vel skiljanlegt og raunar rétt þegar knattspyrnu- mennirnir skorast undan því að taka þátt í landsleikjum sem fram fara á því tímabili sem þeir eru í sumarfríi og ekki í æfingu. en það er einmitt á aðalkeppnistímaþilinu hér á landi. Vandamálin í sambandi við þátttöku atvinnumannanna í landsleikjum eru því mörg. Knattspyrnusamband íslands hefur nú möguleika á því að gera það að skilyrði fyrir jáyrði sínu til þeirra sem fara út í atvinnu- mennsku að þeir fái sig lausa frá félögum sínum til þess að taka þátt í Evrópuleikjum og leikjum í heimsmeistarakeppninni. Slíkir leikir skipta vitanlega mestu máli. En því má þó aldrei gleyma eða horfa fram hjá að vitanlega skiptir viðhorf og hugarfar leikmannanna sjálfra mestu máli og sem beturfer hefur það hingað til yfirleitt verið jákvætt. Þeir hafa haft vilja og metnað til þess að leika með íslenska landsliðinu og vonandi verður svo einnig í framtíðinni. 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.