Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 9
Atli er
óvenjulegur
marka-
skorari
Það hefur varla farið fram
hjá nokkrum blaðalcsanda að
landsliðsmaðurinn góðkunni
Atli Eðvaldsson náði þeim frá-
bæra árangri að verða í 2.—3.
sæti yfir markahæstu leikmenn
Vestur-Þýskalands eftir að
hafa skorað heil 5 mörk í síð-
asta leik Fortuna Diisseldorf í
„Bundesligunni“ þýsku á ný-
liðnu keppnistímabili. Sannar-
lega mikið afrek og verðskuld-
aður afrakstur óhemju vinnu
sem Atli hefur lagt á sig til að
spjara sig í hörðum og misk-
unnarlausum heimi atvinnu-
knattspymunnar. Atli var
fljótlega eftir að hann hélt út
færðurframar á völlinn, en hér
heima lék hann lengstum sem
miðvallarleikmaður og var
reyndar óvenju markheppinn
sem slíkur. Úti vildu menn
nota yfirburði hans í loftinu,
þ.e. í skallaeinvígum, svo og
grimmd hans og ósérhlífni upp
við markið og hann var gerður
að miðherja. Og nú er svo
komið að vandfundinn er
hættulegri miðherji í
„Bundesligunni“, sem sögð er
ein besta deildarkeppni í
heimi.
En Atli er samt ekki þessi
dæmigerði markaskorari, sem
lúrir upp við vítateig andstæð-
inganna og bíður tækifæris, en
tekur að öðru leyti lítinn þátt í
leiknum. Hann er sívinnandi,
úti um allan völl, alltaf reiðu-
búinn til að taka þátt í varnar-
leiknum og örskömmu síðar
orðinn fremsti maður í sókn.
Það er jafnvel talið að Atli hafi
of mikla yfirferð, og að hann
sé of óeigingjarn. Þetta lýsir
vel þeim hugsunarhætti sem
algengur er í atvinnumennsku í
knattspyrnu, og Þjóðverjar eru
frægir að endemum fyrir, það
er að hver leikmaður hugsi
eingöngu um sjálfan sig og
eigin frammistöðu, en liðs-
heildin sé aukaatriði. Sem
betur fer gerir Atli sér grein
fyrir að knattspyrna er hóp-
íþrótt og leikur samkvæmt því.
Fyrir vikið er hann mjög vin-
sæll meðal meðspilara svo og
þjálfara.
Annað sem er athyglisvert í
sambandi við frammistöðu
Atla er á hversu fjölbreyttan
hátt hann skoraði mörkin sín
21 í vetur. Þau skiptust nokk-
urn veginn jafnt á hægri fót,
vinstri fót og höfuðið („skall-
ann“) meðan keppinautarnir
voru mun einhæfari, t.d. Horst
Hrubesch með helminginn
með skalla, Rumenigge og
Littbarski með bróðurpartinn
af mörkum sínum með hægra
fæti o.s.frv.
Eðvarð bestur
Njarðvíkinga
Nýlega fór fram kjör
„íþróttamanns Njarðvíkur
1982“. Þarf engum að koma á
óvart að sundkappinn ungi,
Eðvarð Þ. Eðvarðsson varð
A heimavelli
fyrir valinu, en Eðvarð stóð sig
frábærlega vel í íþróttagrein
sinni á árinu og setti fjölmörg
íslandsmet. Er hann raunar
einn besti sundmaður landsins
og á vafalaust enn eftir að láta
verulega að sér kveða. Fékk
Eðvarð verðlaunaskjöld sem
fylgdi sæmdarheitinu, bikar og
verðlaunapening. Það var
Ungmennafélag Njarðvíkur
sem stóð fyrir kjörinu, en á
aðalfundi félagsins sem hald-
inn var í byrjun júní urðu for-
mannaskipti hjá félaginu.
Oddgeir Karlsson lét af störf-
um, en Jón Halldórsson tók
við.
íþróttablaðið
Áskriftar-
símar
82300
82302
9