Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 11

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 11
Á heimavelli Hilmar með Val að nýju Þótt langt ?é til haustsins eru handknaítleiksmenn landsins þegar farnir að draga fram íþróttaskóna og hefja hefðbundnar útiæfingar í formi langhlaupa og annars undirbúnings að þoli því og þreki sem nauðsynlegt þykir í hinni hörðu 1. deildarkeppni á íslandi. Valsmenn hafa sést á skokki við Öskjuhlíðina og munu þeir stefna á stærri hluti á næsta keppnistímabili en því síðasta, þegar þeim tókst ekki að komast í fjögurra liða úr- slitin. Nokkrar mannabreyt- ingar munu verða í og kringum Hlíðarendaliðið. Fyrrum landsliðsþjálfarinn. Hilmar Björnsson, verður við stjómvölinn hjá Val á nýjan leik, en hann náði sem kunn- ugt er stórkostlegum árangri með liðið fyrir nokkrum árum, íslandsmeistarar þrisvar í röð (1977—79) og 2. sætið í Evrópukeppni meistaraliða 1980. Tveir fyrrverandi leik^ menn Vals eru flognir heim í hreiðrið aftur, þeir Björn Bjömsson, skotfasta vinstri- handar skyttan, sem ieikið hefur með ÍR undanfarin tvö ár, og Stefán Halldórsson, sem upphaflega kemur frá HK, gerðist þjálfari og leikmaður með Tý í Vestmannaeyjum eftir nokkur ár með Val og lék með KR á síðasta keppnis- tíniabili. Sannarlega töluvert flakk á einum leikmanni, en Stefán er mikil skytta sem getur með meiri ögun orðið leikmaður í fremstu röð. Það er því Ijóst að Valsmenn ætla sér stóra hluti, en þeir eru ekki einir um það. Víkingar láta ekki íslandsmeistaratitil- inn eftir baráttulaust, FH-ing- ar eru sjálfsagt óánægðir með frammistöðuna í úrslitakeppn- inni í vor og vilja sjálfsagt sýna og sanna að þeir séu meira en efnilegir. Svo eru lið KR og Stjörnunnar stór spurninga- merki, þannig að það verður við ramman reip að draga. Sjónvarpið og íslenska knattspyrnan Hinn kunni íþróttafrétta- maður sjónvarpsins, Bjarni Felixson, jók mjög á vinsældir sínar meðal almennings er hann síðast liðið vor sýndi þrjá stórleiki úr evrópskri knatt- spyrnu beint og er það vel. Leikir milli góðra atvinnu- niannaliða þola það vel flestir hverjir að vera sýndir í heild. Öðru máli gegnir með íslensku knattspyrnuna. Þar eru gæðin minni af skiljanlegum ástæð- um og engum gerður greiði með því að sýna 90 mínútur af misgóðum leikjum íslenskra liða á völlum sem stundum eru til háborinnar skammar. Nei, úr því að Englendingar verða að klippa sína leiki niður í 20—30 mínútur og þaðan af niiniia, þá er engin skömm fyrir okkur íslendinga að viðurkenna það að okkar leikir eru mun betra sjónvarpsefni ef aðeins eru sýndir valdir kaflar, 10—30 mín., eins og oft má raunar sjá í íþróttaþætti sjón- varpsins á mánudögum. Annað sem væri vel þegið er að fá að berja augum íslenska kvenna- knattspyrnu svona annað veif- ið, en stúlkunum hefur fleygt fram á síðustu árum, og al- kunna er að íþróttir kvenna hljóta alls ekki næga umfjöll- un í fjölmiðlum. KKÍ heiðrar Sambands- menn Körfuknattleikssamband ís- lands sæmdi nýlega tvo starfs- menn Sambands íslenskra samvinnufélaga, þá Gunnstein Karlsson fyrrverandi auglýs- ingastjóra og Guðmund Guð- mundsson fræðslufulltrúa gullmerki KKÍ, en báðir þessir menn höfðu átt aðild að fram- kvæmd styrkveitingar íþrótta- styrks Sambandsins árin 1980 og 1981 er Körfuknattleiks- sambandið hlaut styrkina. 11

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.