Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 13
A heimavelli
HÆTTIR ÞORLEIFUR
VIÐ AÐ HÆTTA?
KA-menn sem unnu sér sæti
í 1. deildinni í handknattleik á
næsta keppnistímbili hafa orð-
ið fyrir miklu „mannfalli“ og
skakkaföllum. í fyrra léku
tveir danskir handknattleiks-
menn með liðinu, þeir Kjeld
Mauritssen og Flemming
Bevensee og voru raunar
burðarásar liðsins. Þeir eru nú
báðir famir til síns heima og
engu er líkara en KA sé að
koma sér upp útlendingaher-
sveit í Danmörku, þar sem
tveir aðrir leikmenn liðsins í
fyrra, Friðjón Jónsson og Er-
lendur Hermannsson fara
einnig til Danmerkur og verða
því ekki með næsta vetur. Að
auki munu KA-menn svo missa
Guðmund Guðmundsson sem
heldur heim á fornar slóðir og
leikur með Víkingum næsta
vetur. Þá hefur hinn gamal-
kunni kappi Þorleifur
Ananíasson ákveðið að leggja
skóna á hilluna, en líklegt
verður að telja að forystumenn
KA leggi mikið kapp á að telja
honum hughvarf, enda mun
ekki af veita ef KA ætlar sér að
láta til sín taka í hinum harða
slag í 1. deildinni.
Urgur í norðan-
mönnum
Mikill urgur er sagður í
lyftingamönnum á Akureyri út
í stjórn Lyftingasambands ís-
lands. Ástæðurnar eru margar,
m.a. val keppenda á Norður-
landamótið sem fram fór í
Laugardalshöllinni í sumar og
keppnisbann á tvo lyftinga-
menn frá Akureyri í framhaldi
af því. Þá þótti Akureyringum
steininn taka úr er íslandsmet
sem Kári Elísson setti á móti á
Austfjörðum í sumar var dæmt
ógilt. Segja Akureyringar að
KR-ingar séu í meiri hluta í
stjórn lyftingasambandsins og
reki grimma félagspólitík með
hagsmuni sinna lyftingamanna
í huga.
UMSE mun
hætta í blakinu
Á þingi Ungmennas. Eyja-
fjarðar sem haldið var fyrir
skömmu var lagt til að sam-
bandið hætti þátttöku í öllum
opinberum mótum á vegum
Blaksambands fslands, en
jafnframt var því beint til
stjórnar og blaknefndar sam-
bandsins að reynt yrði að út-
vega húsnæði til blakæfinga
fyrir þau félög er þess óska.
Eyfirðingar hafa verið í
fremstu röð í blaki á undan-
förnum árum, og verður því
mikil eftirsjón af þeim ef þeir
hætta að senda lið til keppni
svo sem allar horfur eru á. Það
Framhaldábls. 86
13