Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 18

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 18
Islensk „innrás í Banda- 55 íslenskir frjálsíþróttamenn hafa hreiðrað slg á þremur stöðum í Bandaríkjunum: San José í Kaliforníu, Austin í Texas og Tuscaloosa í Alabama. íslenskir frjálsíþrótta- menn orðnir eftir- sóttir af háskólunum Árangur íslensks frjálsíþrótta- fólks í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli undanfarið. Á bandaríska háskólameistara- mótinu kepptu 8 íslenskir frjáls- íþróttamenn og komust þeir allir í úrslit í sínum greinum. Einar Vilhjálmsson og Þórdís Gísla- dóttir urðu bandarískir meistarar og er það þriðji meistaratitill Þórdísar á jafnmörgum mótum. Óskar Jakobsson, Oddur Sig- urðsson, Þráinn Hafsteinsson og Vésteinn Hafsteinsson náðu all- ir hinum eftirsótta titli All-Am- erican, sem þeim íþróttamönnum hlotnast sem ná einu af 6 efstu sætunum á meistaramótinu. Hinn stórgóði árangur þessa fólks hefur orðið til þess að þjálfarar víðs vegar að úr Banda- ríkjunum sækjast nú eftir því að fá til sín íslenskt frjálsíþróttafólk. Það var ekki fyrr en 1980 að íslenskir frjálsíþróttamenn fóru að flykkjast vestur um haf í miklum mæli. Hinn erfiði ís- lenski vetur hefur valdið því að margir hafa reynt að fara utan til þess að freista þess að ná betri árangri við betri aðstæður og þá gjarnan að sameina slíkt fram- haldsnámi. Lágu leiðir flestra til Bretlands, Þýskalands eða Norðurlanda. Það var síðan seinni hluta árs 1978 að Óskar Jakobsson komst í samband við háskólann í Austin í Texas sem bauð honum styrk til náms. Ósk- ar vakti strax athygli fyrir góða frammistöðu og þjálfaramir fóru að athuga möguleika á að fá fleiri efnilega frjálsíþróttamenn frá ís- landi. Á árum áður höfðu nokkrir ís- lenskir frjálsíþróttamenn dvalið í lengri eða skemmri tíma í Bandaríkjunum. Má þar nefna Jón Þ. Ólafsson hástökkvara sem æfði í Kaliforníu fyrir Olympíu- leikana 1964, Ingvar Hallsteins- 18

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.