Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 21
Austin er frábær staður
„Ástæðan fyrir því að ég fór til
Austin en ekki eitthvað annað
var sú að Óskar Jakobsson hafði
verið þar veturinn áður og
Blackwood þjálfari við skólann
kom til Islands til að athuga
möguleika á að fá fleiri ís-
lenska frjálsíþróttamenn til
Texas. Reyndar var hann aðal-
lega að leita eftir langhlaupurum
en honum leist alla vega nógu vel
á mig til að bjóða mér að koma í
skólann þá um haustið, en ég
hafði verið frekar óráðinn í hvað
ég ætlaði mér eftir stúdentspróf-
ið. Mér hafði dottið í hug að fara
til Þýskalands þar sem frjáls-
íþróttir eru mjög hátt skrifaðar.
En þegar þessi möguleiki opnað-
ist hugsaði ég mig ekki tvisvar
um. Að geta sameinað nám og
æfingar við bestu aðstæður var
það sem mig hafði dreymt um.
Eftir að hafa kynnst aðstöð-
unni víða í Bandaríkjunum verð
ég að segja að ég er ákaflega
þakklátur fyrir að hafa lent í
Austin. Það er mjög vel búið að
íþróttafólkinu og möguleikar í
námi eru miklir, enda skólinn
Oddur Sigurðsson. Strákurínn sem þjálfarínn sagðist hafa séð á ísjaka á
íslandi. Hann kann svo sannarlega að hlaupa.
„GETUR ÞÚ HLAUPIÐ,
STRÁKUR?”
I Austin í Texas voru í vetur 4
íslenskir frjálsíþróttamenn, Ósk-
ar Jakobsson, Einar Vilhjálms-
son, Ágúst Þorsteinsson og Odd-
ur Sigurðsson. Oddur vakti mikla
athygli 1980 þegar hann hljóp
strax í landsliðið á sínu fyrsta
keppnistímabili. Hann var því
hálfgerður nýgræðingur í íþrótt-
inni þegar hann fór til Texas
haustið ’81. Við báðum Odd að
segja frá því hvernig það kom til
að hann fór til Texas og hvernig
honum líkar dvölin.
einn af þeim stærri í Bandaríkj-
unum með um 48 þúsund nem-
endur. Aðalíþróttaleikvangurinn
tekur yfir 80 þúsund áhorfendur
og það sækja unr 70—80 þúsund
fótboltaleikina (bandarískur fót-
bolti) þegar skólaliðið spilar.
Tekjurnar af þeim leikjum koma
öllum íþróttagreinum til góða.
Við fáum líka um 30 þúsund
áhorfendur á stærsta frjáls-
íþróttamótið, Texas Relays,
þannig að íþróttadeildin hefur
yfir miklu fjármagni að ráða.
21