Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 23
Frjálsíþróttalið University of Texas, Austin, keppnistímabilið 1982—1983. Óskar Jakobsson er fyrir miðju í
fremstu röð, Einar Vilhjálmsson lengst til vinstri og Oddur Sigurðsson fimmti frá vinstri íannarri röð.
Skólinn gerir því mjög vel við
keppnisliðið og ef við ferðumst
langar leiðir leigjum við eigin
flugvél og búum alltaf á góðum
hótelum á keppnisferðum. Það er
því ómögulegt annað en að vera
ánægður rneð lífið þarna þegar í
viðbót kemur að ég er mjög
ánægður með skólann.
Þjálfararnir hafa gaman af að
segja sögur af íslendingunum.
Einu sinni var Blackwood að
kynna mig fyrir þjálfara og sagði
þá hvernig hann hefði náð í mig.
„Það var þannig að þegar ég fór
til íslands í maí var mér boðið að
veiða. Ég stóð þarna úti í ánni
með stöngina þegar ég sá gríðar-
stóran ísjaka koma siglandi niður
ána. Á jakanum var strákur og ég
kalla til hans, geturðu hlaupið?
Strákurinn kallar já til baka og ég
lét hann skrifa undir á staðnum.“
Það voru auðvitað geysileg
viðbrigði að koma til Texas og
æfingaaðferðirnar voru mjög
ólíkar því sem ég hafði verið að
gera hér heima. Enda má segja að
ég hafi verið allt fyrsta árið að
venjast breyttum aðstæðum. Það
eru margir frábærir hlauparar við
skólann en ég treysti stöðu mína
með því að setja íslandsmet í 400
m sumarið áður en ég fór út og
hef alltaf verið fastamaður í lið-
inu. Ég hef auðvitað aðallega
Einar Vithjáimsson hefur tekið
stórstígum framförum að undan-
förnu og er nú kominn í hóp bestu
spjótkastara íheiminum.
hlaupið 400 m sem er mín aðal-
grein, en ég hef keppt fyrir skól-
ann á öllum vegalengdum frá 100
m upp í 800 m. 4x400 m boð-
hlaupssveitin okkar er ein sú
sterkasta í Bandaríkjunum og
hlupum við á 3:03.33 mín. í ár.
Það er árangur sem aðeins bestu
frjálsíþróttalandslið í Evrópu ná.
Ég reyni að kappkosta að vera í
góðu formi þegar ég keppi með
íslenska landsliðinu en vissulega
er það erfitt þegar keppnistíma-
bilið er svo gífurlega langt. í fyrra
var ég mjög þreyttur eftir
Evrópumeistaramótið sem fram
fór í byrjun september eftir að
hafa keppt í 8 mánuði. Það
verður því að stefna sérstaklega
að vissum mótum og taka mótin í
upphafi keppnistímabilsins í
Bandaríkjunum frekar sem
æfingu. Ég æfi alltaf meira en
hinir hlaupararnir á þeim tíma og
hvíli ekki eins og þeir í kringum
mótin, en reyni að ná toppi á
Confernece mótinu og NCAA.
Ég er á því að hægt sé að ná öðr-
um toppi síðar á sumrinu. í ár
eru t.d. mörg stórverkefni í ágúst
og ég stefni að því að verða í
toppformi þá.“
23