Íþróttablaðið - 01.08.1983, Qupperneq 24
„DRAUMURINN HEFUR
ORDID AÐ VERULEIKA”
- segir Vésteinn Hafsteinsson sem hefur stórbætt
fyrri árangur sinn
í Tuscaloosa í Alabama voru 6
íslenskir frjálsíþróttamenn s.l.
vetur. Þórdís Gísladóttir og Þrá-
inn Hafsteinsson hafa verið
þarna lengst og hafa þau greitt
götu þeirra er á eftir hafa komið
en það eru Vésteinn, bróðir Þrá-
ins, Pétur Guðmundsson, Sig-
urður Einarsson og íris Grön-
feldt.
íris og Vésteinn voru tekin tali
þegar þau voru nýkomin að utan.
íris er íslandsmethafi í spjótkasti.
Hún lauk stúdentsprófi um síð-
ustu jól og fór eftir það beint til
Alabama.
„Ég hef alltaf ætlað mér að
verða íþróttakennari og beinast
lá við að fara til Laugarvatns eftir
stúdentsprófið. Þráinn og Þórdís
komu mér í samband við þjálfar-
ana í Alabama en þeir voru ein-
mitt að leita eftir spjótkastara í
kvennaliðið. Ég var auðvitað yfir
mig ánægð með það og sé ekki
eftir því að hafa farið. Að æfa í
góðu veðri þar sem vetrarveðrið
er eins og sumarveður á íslandi er
stórkostlegur munur. Ég æfi
mikið með strákunum og tek
bæði lyftingaæfingar og tækni-
æfingar með þeim. Það er einn
kastþjálfari við skólann en spjót-
kastið er ekki hans besta grein, en
við Sigurður Einarsson spjót-
kastari höfum unnið mikið sam-
an og hefur verið gott að hafa
hann til að segja sér til á tækni-
æfingum. Ég held ég geti verið
ánægð með mitt fyrsta keppnis-
tímabil fyrir skólann. Ég vann
Confernece mótið þar sem ég
setti íslandsmet 52.38 m. Mér var
ekki spáð úrslitasæti á NCAA þar
sem 12 keppendur komast í úrslit
en ég komst inn sem 9. kastari í
úrslitakeppnina og hafnaði í 7.
sæti.
Það er nú yfirleitt ekki reiknað
með að fólk á fyrsta ári eins og
við Sigurður vorum nái úrslita-
sætum á meistaramótinu þannig
að þeir hjá skólanum voru mjög
ánægður með þennan árangur,
en Sigurður varð 10. og kastaði
yfir 72 metra. Það var virkilega
gaman að vera íslendingur á
mótinu og það hafði einhver á
orði að ef Norðurlandabúarnir
væru allir við einn skóla gætu
þeir unnið mótið. Dísa og Óskar
eru þegar orðin stór nöfn þama
og árangur Einars var svo til að
kóróna allt saman, hann var
aldeilis frábær.
Næsta ár er stefnan að verða
All-American, þ.e. að verða ein
af 6 efstu og ég á 3 ár eftir með
liðinu svo ég held að þetta sé allt
á réttri leið. Ég ætla mér að ná
öðrum toppi seinna í sumar og
bæti þá vonandi íslandsmetið.“
Vésteinn er kringlukastari og
hefur verið á stöðugri uppleið. í
vor hefur hann kastað margoft
yfir 60 metra og hefur náð lág-
marki til að keppa á heims-
meistaramótinu í ágúst.
„Dvölin í Alabama hefur upp-
fyllt þær vonir sem ég batt við
hana. Til þess að ná því út úr sér
sem maður hefur hæfileika til
þarf maður að geta einbeitt sér að
æfingunum og við skólann er gert
ráð fyrir því að tími fari í æfing-
arnar. Það er hægt að verða
góður kastari á íslandi eins og
Hreinn Halldórsson sýndi. En
auðvitað er mikill munur að æfa
við aðstæður eins og eru í Ala-
bama, t.d. að geta alltaf kastað úti
í góðu veðri. Ég tel það líka mik-
ils virði fyrir mig að keppa á öll-
um þessum mótum. Þetta eru
skemmtileg mót og mikil keppni.
Ég er að keppa við stráka sem eru
á sama aldri og með svipaðan
árangur. Það hjálpar mikið. Nú
þó að þjálfararnir séu e.t.v. ekki
mikið með í tækniþjálfuninni er
aðstoð þeirra á öllum sviðum
ómetanleg. Við Þráinn höfum
unnið saman í mörg ár og hjálp-
umst mikið að og við tækniþjálf-
unina notum við mikið videotæki
sem skólinn á.
Ég er ánægður með framfar-
irnar það sem af er. Mér gekk
mjög vel í vor og náði því sem ég
stefndi að, það var að kasta yfir
200 fet á Conference mótinu og
NCAA og að verða All-Ame-
rican. Ég setti persónulegt met
62.60 m þegar ég vann Confer-
ence mótið. Við vorum 4 íslend-
Framhald á bls. 86
24