Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 35
Fjórir íslenskir atvinnumenn í knattspyrnu fagna marki þess fimmta. Myndin er úr landsleik íslendinga og
Svisslendinga á Laugardalsvellinum, tekin eftir að Janus Guðlaugsson hafði skorað. Teitur Þórðarson (nr. 9),
Arnór Guðjohnsen og Pétur Pétursson fagna. Á bak við Teit sér íAtla Eðvaldsson.
horf íslensku atvinnumannanna
til landsliðsins svo og árangur
liðsins að undanförnu??
„Það verður hver og einn að
svara fyrir sig, en hvað sjálfan
mig snertir þá hef ég haft metnað
til að spila landsleiki fyrir ísland.
Mér finnst það skemmtileg til-
breyting að koma heim, hitta
strákana í landsliðshópnum og
leika með þeim. Árangurinn
undanfarin 2—3 ár hefur verið
góður. Við höfum staðið í lands-
liðum stórþjóða hér heima, en nú
þurfum við að fara að vinna þessi
sterku landslið. Til þess höfum
við alla burði og ég er sannfærður
um að þess sé ekki langt að bíða.
Þetta kemur jafnt og þétt, og við
erum örugglega á réttri leið.“
Arnór Guðjohnsen var fram-
herji er hann sigldi á vit ævintýr-
anna 16 ára gamall, en hann hef-
ur sýnt það að sem leikmaður er
hann óvenju fjölhæfur. Með
Lokeren hefur hann leikið allar
stöður nema sem miðvörður og
markvörður. Hann var sóknar-
maður fyrstu árin, var síðan
dreginn aftur á miðjuna þar sem
kraftur hans, leikni og alhliða
hæfileikar nýtast betur. Ein-
hverju sinni lék hann í forföllum
stöðu bakvarðar og skilaði því
hlutverki með sóma. Sjálfur telur
hann sig nýtast best sem frjáls
sóknartengiliður fyrir aftan tvo
framherja og hefur auk þess mest
gaman af því. En hvað um fram-
tíð þessa stórgóða leikmanns og
markmið í knattspyrnunni?
„Ég tel mig eiga möguleika á að
ná lengra í knattspyrnunni. Besti
aldurinn fyrir leikmann eins og
mig er 26—29 ár svo ég á enn
nokkur ár í toppinn. Takmarkið
er að komast eins langt og mér er
mögulegt, helst í hóp bestu
knattspyrnumanna Evrópu. En
það verður ekki auðvelt. Margir
leikmenn hafa verið efnilegir, en
aldrei náð að sýna nema brot af
því sem í þeim býr.“
Við vonum að Arnór lendi ekki
í þeim hópi. Reyndar er engin
hætta á því, vegna þess að Arnór
er hættur að vera efnilegur, hann
er orðinn góður knattspyrnu-
maður á hvaða mælikvarða sem
er.
„Já, það er reyndar eitt sem ég
vil að komi fram. Það er í sam-
bandi við félagaskipti mín úr
Víking yfir í Lokeren á sínum
tíma. Þá var deilt mikið á mig og
föður minn fyrir að hafa gert lé-
legan samning við Belgana. Við
áttum að hafa samið af okkur, en
nú hefur komið á daginn, að við
hefðum ekki getað gert betri
samning til að skipta yfir í stærri
klúbb eins og nú hefur átt sér
stað.“
35