Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 47
íþróttamanns hefur drifið og við
byrjum á knattspyrnunni.
Yngri flokkarnir og
fyrstu árin í meistara-
flokki.
Jón Oddsson er fæddur og
uppalinn á ísafirði. Þar eru tvö
aðal íþróttafélög, Hörður og
Vestri. Jón sýndi snemma ótví-
ræða íþróttahæfileika og gekk í
Vestra 7 — 8 ára gamall og hóf
knattspyrnuæfingar.
Hann minnist þess að lið
hans hafi í 5. flokki komist í
úrslit í íslandsmóti. Þjálfari
liðsins, Helgi Már Arthúrsson,
lét piltana æfa 5 sinnum í viku
til að undirbúa þá sem best fyrir
úrslitakeppnina. Hún fór fram í
Reykjavík og vegna flugs vestur
aftur léku ísfirsku piltarnir tvo
leiki sama daginn, unnu fyrst
Þór frá Akureyri 5-0 og töpuðu
síðan fyrir Val með sömu
markatölu. Meðal jafnaldra
Jóns eru Kristinn Kristjánsson
leikmaður með 1. deildarliði ÍBÍ
og Haraldur Leifsson fyrrum
leikmaður liðsins, en hann er
nú við nám í Danmörku. Ári
yngri er landsliðsmaðurinn
Ómar Torfason sem nú leikur
með Víkingi, en hann lék í
yngri flokkunum með Jóni,
m.a. í 4. flokki, þegar engar
æfingar höfðu farið fram fyrir
þátttöku í íslandsmótinu. Þegar
Jón var 17 ára hóf hann að leika
með meistaraflokki ÍBÍ og strax
fyrsta árið vann Iiðið 3. deild-
ina. Þetta var 1975 og þá var
gamla kempan, Björn Helgason
enn prímusmótor liðsins, þótt
kominn væri vel á fertugsaldur,
en hann hafði alla tíð stefnt að
því að leika meistaraflokksleik
með syni sínum Helga, en son-
urinn hætti eftir 3. flokk svo
það varð aldrei af því. Árið
1978 munaði minnstu að ísfirð-
ingarnir ynnu sig upp í 1. deild,
en þeir klúðruðu í lokin og
Haukar frá Hafnarfirði fóru
upp. Eftir það keppnistímabil
Jón er þekktur fyrir risainnköst sín — sem oft á tíðum jafngilda horn-
spyrnum og hann hefur meira að segja skorað mark beint úr innkasti (en
það var auðvitað ekki tekið gitt).
varð breyting á högum Jóns
Oddssonar. Hann hafði lokið
stúdentsprófi vorið 1978 og í
framhaldi af því fluttist hann
suður til Reykjavíkur og hóf
nám við Háskólann. Má segja
að þá hefjist nýr kafli í íþrótta-
lífi Jóns því þá fyrst kynntist
hann markvissri þjálfun og
hafði tíma til að stunda æfingar,
en allt frá 12 ára aldri höfðu
æfingar hjá honum verið fremur
stopular, meðal annars vegna
mikillar vinnu.
KR og íslenska landsliðið.
Þegar Jón flutti suður gekk
hann í KR í knattspyrnunni og
var það mest fyrir tilstilli Magn-
úsar Jónatanssonar sem þá var
þjálfari KR. Með vesturbæjar-
liðinu lék Jón 1979 — 80 og stóð
sig vel, einkum fyrra árið. Þá
náði Jón því að vera valinn í ís-
lenska landsliðið og við spyrj-
um hann um tildrög þess og
hvernig hafi gengið.
„Það kom mjög óvænt er ég
var valinn í landsliðshópinn, en
ég hafði æft vel um veturinn og
var fljótur í gott „form“, og það
er líklega ástæðan fyrir því að ég
datt þarna inn snemma vors.
Liðið var valið eftir frammi-
stöðu í Reykjavíkurmótinu og
lék fyrst í Sviss, þar var ég vara-
maður, og svo gegn Vestur-
Þýskalandi hér heima. I þeim
leik kom ég inn á eftir hlé, fyrir
Pétur Ormslev að mig minnir,
og það er eini landsleikur minn
í knattspyrnu. Síðar um sumar-
ið tognaði ég illa í bikarleik á
Siglufirði og varð töluvert frá.
Um haustið ’79 og veturinn sem
á eftir fylgdi æfði ég vel og ætl-
aði mér stóra hluti í knattspyrn-
unni 1980. Það sumar lærði ég
47