Íþróttablaðið - 01.08.1983, Qupperneq 49
að það borgar sig ekki að hugsa
of mikið um sjálfan sig og eigin
frammistöðu, því það byggir
bara upp pressu á mann sjálfan.
Ég koðnaði eiginlega undan
sjálfsgagnrýni og náði mér
aldrei á strik. Reyndar var 1980
hálfgert ruglár hjá KR, Magnús
var látinn fara um mitt sumar,
og leikmenn hættu með honum,
en ég lék með út tímabilið.“
Framfarir í knattspyrnu
án æfinga.
Jón ákvað þegar hér var kom-
ið sögu að hvíla sig á knatt-
spyrnunni og einbeita sér að
frjálsum íþróttum árið 1981 í
kjölfar æ betri árangurs í lang-
stökki og það að mestu leyti án
æfinga. Hann æfði frjálsar
íþróttir allt árið 1981, en stóðst
ekki mátið þegar Magnús Jóna-
tansson sem þá var orðinn þjálf-
ari ÍBI bað hann um að leika
með í 2. deildinni. Jón bjó í
Reykjavík og æfði eingöngu
frjálsar, en lék knattspyrnu einu
sinni í viku með IBÍ. Hvernig
skyldi þetta nú hafa gengið?
„Það var svolítið skrýtið, en
ég er á því að mér hafi farið
fram í knattspyrnunni þetta ár
sem ég æfði íþróttina ekkert en
lagði áherlsu á frjálsar. Sú mýkt
sem maður fékk úr æfingunum
fyrir langstökkið og aðrar grein-
ar frjálsra íþrótta skilaði sér
þegar út í knattspyrnuleikina
var komið svo jafnvel tæknin
varð meiri. Svo hugsaði ég
öðruvísi en áður og lærði að
maður spilar best þegar maður
leikur fyrir liðið en ekki ein-
göngu fyrir sjálfan sig. Þetta ár
urðum við í 2. sæti í 2. deild (á
eftir ÍBK) og ÍBÍ vann sér loks-
ins sæti í 1. deildinni."
Arangur Isfirðinga
í 1. deild.
Það þótti vel af sér vikið hjá
liði ÍBÍ að vinna sér þátttöku-
rétt í 1. deildarkeppninni í
knattspyrnu, en ekki áttu menn
von á að viðdvöl Vestfirðing-
anna yrði nema eitt ár þar. Þeir
skelltu þó skollaeyrum við öll-
um hrakspám og undir styrkri
stjórn Magnúsar Jónatanssonar
urðu þeir um miðja deild, í
5.-7. sæti, og skoruðu flest
mörk allra liða í 1. deild.
Jón Oddsson var og er lykil-
leikmaður í ÍBÍ-liðinu og gegnir
þar tvíþættu hlutverki. Með
hraða sínum og dugnaði skapar
hann ávallt mikinn usla í vörn-
um andstæðinganna, opnar fyr-
ir meðspilara sína eða skorar
sjálfur. Svo er Jón sérfræðingur
í innköstum, kastar sjálfsagt
lengra en nokkur annar íslensk-
ur knattspyrnumaður, og ÍBI
nýtir þennan hæfileika Jóns og
hefur gert mörg mörk eftir inn-
köst. Ekki hefur Jón æft þessi
feiki löngu innköst, en þakkar
þau góðri alhliða þjálfun á síð-
ustu árum. Nú hefur leikaðferð
ÍBÍ verið nokkuð gagnrýnd af
sérfræðingum sem þykir lítið til
hennar koma og lýsa henni sem
langspyrnum (,,kýlingum“)
fram á Jón og mikilli baráttu
samfara áherslu á hornspyrnur
og innköst. Hvað segir Jón um
þetta?
„Ég vil bara benda á árangur-
inn. Það er staðreynd að hér á
íslandi er hægt að ná góðum
árangri í knattspyrnunni með
því að leggja áherslu á fá, til-
tölulega einföld atriði. Og við
spilum eins og okkur hentar
best. Til frekari skýringar vil ég
geta þess að í fyrra fengum við
aðeins 5 stig á heimavelli en 12
á útivöllum. Heima vorum við
of bráðir, lékum opnara og
fengum á okkur mörg mörk. Á
útivölum lékum við gætilegar
og það hentaði okkur greinilega
betur. Ekki má gleyma sam-
stöðunni í Iiðinu, hún hefur
fleytt okkur langt. í fyrra kom
t.d. kafli þar sem við töpuðum 5
leikjum í röð (þar af einum í
bikarnum) en aldrei brást liðs-
Tvö keppnistímabil lék Jón Odds-
son íKR-búningnum og vará þeim
tíma valinn ííslenska knattspyrnu-
landsliðið.
andinn. Við unnum okkur upp
úr lægðinni."
„ÍBÍ fellur ekki í ár.“
Áður en við segjum skilið við
knattspyrnuna, Jón, hvað viltu
segja um 1. deildina í ár og
möguleika ykkar ísfirðinga?
„Það sem mér hefur komið
mest á óvart er hversu illa Val
49