Íþróttablaðið - 01.08.1983, Síða 52
dæmi sé tekið. Það er öðru nær
og vakna í því sambandi upp
spurningar um það hvort ann-
arleg sjónarmið ráði í sumum
tilfellum vali keppenda. Til
dæmis hefur verið gengið
framhjá Jóni Oddssyni og sjálf-
sagt fleirum þegar lið hefur ver-
ið valið fyrir Kalott. Þó látið
hafi verið í það skína að fjár-
hagsástæður spili inn í val liðs-
ins, því reynt sé að senda eins
fáa keppendur og kostur er, hafa
ekki allir sætt sig við slíkar skýr-
ingar. í ljós hefur nefnilega
komið að einstaklingur sem er
sendur út og fenginn til að
keppa í aukagrein sinni á
kannski mun lakari árangur í
greinunum samanlagt en annar
sem ekki er valinn. Það eina
sem sparast við slíkt val eru stig
í sarp íslenska landsliðsins.
Ekki verður því að óreyndu
trúað að forystumönnum frjáls-
íþróttamála sé svo mjög í nöp
við að maður sem keppir í
frjálsum íþróttum „í hjáverk-
um“ nái jafn góðum árangri og
raun ber vitni, og gangi af þeim
sökum framhjá honum við val
íslenska landsliðsins.
Afrekaskrá
Jóns Oddssonar
í frjálsum íþróttum:
Jón Oddsson hefur eins og
fram hefur komið lagt aðal-
áhersluna á langstökkið af
greinum frjálsra íþrótta og náð
þar umtalsverðum árangri með
furðu lítilli fyrirhöfn. Hann er í
dag besti langstökkvarinn inn-
anhúss og sá næst besti utan-
húss. En eins og títt er um frjáls-
íþróttamenn hefur Jón einnig
lagt stund á ýmsar aðrar grein-
ar, svona til að hvíla sig á aðal-
greininni. Hefur hann náð
prýðis árangri í mörgum grein-
um, en sameiginlegt þeim flest-
um er að hann hefur ekkert æft
þær svo heitið geti, bara keppt
og bætt árangur sinn í hvert
sinn. Lítum á afrekaskrána.
,,Ekki spurning um í hvaða íþróttagrein ég hefði getað náð lengst —
heldur hver er skemmtilegust og þar hefur knattspyrnan vinninginn. “
Langstökk (úti): 7.31 m.
Langstökk (inni): 7.52 m ísl,-
met.
Hástökk (úti): 1.95 m.
Hástökk (inni): 1.90 m.
Þrístökk: tæp. 14 m.
100 m hlaup: 11.1 sek. (hand-
tímataka), 11.24 (rafmagns-
klukka).
200 m hlaup: 23.00 (rafmagns-
tími).
400 m hlaup: 52 — 53 sek.
(boðhlaupið).
Spjótkast: Um 42 m.
Kringlukast: 37 — 38 m.
Kúluvarp: Um llm.
Evrópuleikir í körfu-
knattleik, sundmet og
fimleikaflokkur.
Þótt segja megi að knatt-
spyrnan og frjálsar séu þær
íþróttageinar sem Jón Oddsson
hefur lagt mesta áherslu á og
náð bestum árangri í, þá er ekki
þar sem sagt að hann hafi ekki
lagt stund á aðrar íþróttagrein-
ar. Sem ungur drengur á ísafirði
52