Íþróttablaðið - 01.08.1983, Síða 53

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Síða 53
var hann bókstaflega í öllu því sem hægt var að hugsa sér. Hann tók þátt í sundmótum ungra stráka og á enn nokkur Vestra-met í flokki 10 ára og yngri. Handknattleikslið að vestan lék eitt sinn í úrslita- keppni 3. deildar þar sem það tapaði fyrir Stjörnunni og að sjálfsögðu var hinn fjölhæfi Jón Oddsson meðal leikmanna ísa- fjarðarliðsins. Á Menntaskóla- árum Jóns var hann í fimleika- flokki skólans og það sagði hann að hefði hjálpað sér mikið í sambandi við mýkt, stökkkraft og fleira. Svo var það karfan, en þar er Jón mjög liðtækur eins og margir vita. Ásamt Ómari Torfasyni, Haraldi Leifssyni og fleirum myndaði Jón ágætt lið í 3. flokki, sem komst í úrslit og fór til Reykjavíkur þjálfara- og for- ystulaust. Þeir fimmmenning- arnir unnu Fram en töpuðu á vafasaman hátt fyrir ÍR og öll liðin urðu jöfn og þurftu að leika að nýju. Þá sagði úthalds- og stjórnunarleysið til sín og Vestfirðingarnir urðu að lúta í lægra haldi. Jón lék síðan með KFÍ í 2. deildinni þar til hann flutti suð- ur, þá gekk hann til liðs við úr- valsdeildarlið Stúdenta. Með ÍS lék Jón 1978 — 79, eldfljótur bakvörður sem oft skoraði fjölda stiga, einkum eftir hraða- upphlaup. Þetta tímabil tók ÍS þátt í Evrópukeppni bikarhafa og lék gegn spænska stórliðinu Barcelona sem vann 125-79 og 124-79. Á næsta keppnistíma- bili lék Jón með Val í úrvals- deildinni fram að áramótum, en varð þá að hætta þar sem hann tók að sér þjálfun 3. flokks KR í knattspyrnu. Eftir þetta varð ekki tími fyrir körfuboltann, ekki einu sinni fyrir mann eins og Jón Oddsson, því hann fór að taka langstökkið alvarlega og það eru ekki nema 24 klst. í sól- arhring, og það eru takmörk fyrir því sem hægt er að áorka á þeim tíma, jafnvel fyrir orku- búnt eins og Jón Oddsson. Á upptalningu þessarri ætti að vera ljóst að Jón hefur haft töluvert að gera, og það hefur ekki verið óalgengt fyrir hann að æfa eða keppa tvisvar á dag. Skyldi maðurinn aldrei vera þreyttur? „Maður þreytist ekki á því sem er skemmtilegt.“ „Ekki verulega. Þó hafa sum- ar helgarnar þegar mikið hefur verið um að vera verið erfiðar, en maður finnur ekki eins fyrir þreytu þegar maður er að gera eitthvað skemmtilegt. Sem dæmi um erfiða helgi get ég tek- ið eina sumarið 1978. Þá fór Landsmót UMFÍ fram á Sel- fossi. Á föstudegi keppti ég í lang- stökki og vann og varð síðan annar í hástökki á eftir Karli West fyrir hádegi á laugardegi, stökk 1.94 m. Að því búnu „húkkaði" ég mér far til Reykjavíkur, náði flugvél vestur til ísafjarðar og lék þar einn knattspyrnuleik. Eftir sturtuna fór ég út á ísafjarðarflugvöll upp á von og óvon, fékk far með einkaflugvél til Reykjavíkur, tók strætó upp í Árbæ og fór þaðan á puttanum austur. Síðan keppti ég í þrístökki og 4x100 m boðhlaupi á sunnudegi og þar með var minni þátttöku í íþrótt- um lokið þá helgina.“ Sérðu ekkert eftir öllum þess- um tíma sem í íþróttirnar hefur farið? „Nei, alls ekki. Þetta hefur veitt mér mikla ánægju og ég er staðráðinn í að halda áfram meðan ég hef gaman af. Ég ætti að vera á toppnum sem knatt- spyrnumaður 28 — 30 ára ef ég æfi vel. Eina eftirsjáin er að hafa ekki komist undir handleiðslu alvöru þjálfara fyrr og það hefur kannski bitnað mest á frjálsu íþróttunum. í knattspyrnunni var ég svo heppinn að lenda hjá Magnúsi Jónatanssyni í ljögur ár og hann hefur átt lang mestan þátt í minni framvindu og framþróun sem knattspyrnu- manns. Við erum ágætir félagar og tölum mikið saman um knattspyrnu á sumrin og rjúpur á haustin. „Knattspyrnan ávallt númer eitt.“ Ein erfið spurning að lokum. Átt þú Jón ekki að leggja frekar áherslu á langstökk en knatt- spyrnu? Hefur þú ekki meiri hæfileika sem frjálsíþróttamað- uren sem knattspyrnumaður? „Margir vilja meina það og mér hefur oft verið sagt að ég sé heimskur að velja fótboltann sem mína aðalíþrótt. En málið er bara það að mér hefur alltaf þótt meira gaman að knatt- spymu en frjálsum. Ég gerði til- raun árið 1981 til að breyta þessu og leggja áherslu á frjáls- ar, en mér hálfleiddist. Kannski að hópíþróttir henti mér betur. En ég hef haft gott af frjáls- íþróttaæfingunum. Þar hef ég lært mikið um líkamann, svo sem starfsemi vöðvanna og fleira, þýðingu þess að teygja og hita vel upp fyrir æfingar og leiki.“ Jón Oddsson er vissulega sér- stakt fyrirbæri í íslensku íþróttalífi. Svo að segja fyrir- hafnarlaust hefur hann náð mjög góðum árangri í þremur alls óskyldum íþróttagreinum, körfubolta, knattspyrnu og frjálsum íþróttum, og að auki komið nokkuð við sögu í öðrum greinum. Hann hefur verið góð auglýsing fyrir heimabyggð sína, ísafjörð, og ungmennum um allt land góð fyrirmynd sak- ir reglusemi og íþróttamanns- legrar framkomu. íþróttablaðið þakkar Jóni fyrir spjallið og óskar honum alls hins besta. 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.