Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 57
Heitirpottar hafa nýlega verið settir við laugina og eru þeirmjög vinsælir
og mikið notaðir.
lítilli laug, Bjarnarlaug, sem er
aðeins \2'/i m að lengd. Er ekki
þröngt um sundmenning á æf-
ingum, Helgi?
„Jú, það segir sig sjálft. Svo er
annað sem einnig spilar inn í og
það er hve sundfólkið okkar er
mun eldra nú en áður og þarf
því meira pláss. Áður fyrr vor-
um við með 12 — 14 krakka á
æfingum í einu, en nú er ekki
hægt að koma fleiri en 6 — 7 í
laugina í einu ef vel á að vera.
Skýringin á þessu felst í tilkomu
fjölbrautaskólans hér á Akra-
nesi. Fyrir komu hans misstum
við gjarnan krakkana burt af
Skaganum í framhaldsnám þeg-
ar þeir voru 17 ára, og þá komu
nýir krakkar inn í staðinn, end-
urnýjun varð stöðugri. Þetta
vandamál er tilkomið vegna
smæðar laugarinnar, hún hefur
alltaf sett þröngar skorður.“
Hvað með fjölda þeirra sem
leggja stund á sundæfingar með
keppni fyrir augum, þjálfun og
fleira.
„Það er ótrúlega mikill áhugi
fyrir sundíþróttinni hér á Akra-
nesi og á afreksfólkið okkar
stærstan þátt í því. Það eru nú
um 40 sem æfa, en það virðist
vanta meiri breidd til að taka
við af þeim sem nú eru á toppn-
um. Ekki er hægt að koma auga
á neinn afburða afreksmann
sem koma muni upp á næstu
árum, en við eigum ágæt efni
eins og Eyjólf Jóhannsson og
fleiri, en herslumuninn virðist
vanta. Fjöldi æfinga á viku er
nokkuð breytilegur, en þegar
krakkarnir eru 14 — 15 ára er
ekki óalgengt að þeir æfi 8 sinn-
um í laug vikulega auk tveggja
þrekæfinga. Það er því mikið
erfiði sem sundmenn leggja á sig
til að ná árangri og er hægt að
tala um 10 — 12 ára linnulausa
þjálfun, því margir byrja 8—9
ára að aldri og eru á toppnum
um tvítugt. Annars var sænski
landsliðsþjálfarinn í sundi
staddur hér á landi síðast liðið
haust og hélt þá námsskeið fyrir
sundþjálfara, og hann hélt því
fram að þest væri að fá sund-
fólkið aðeins eldra til æfinga,
helst 11 — 12 ára gamalt.“
„Ingi Þór á að geta náð
lágmarksárangri fyrir
Ólympíuleikana.“
Hvað er að frétta af
sundtríóinu sterka af Skagan-
um, Ragnheiði, Inga Þór og Ing-
ólfi?
„Ragnheiður er í Svíþjóð
núna og æfir af kappi eftir því
sem ég best veit. Það var ákaf-
lega ánægjulegt að henni skyldi
takast að setja met í 100 m bak-
sundi í fyrra. Við vorum búin
að bíða lengi eftir kvennameti.
Ingólfur Gissurarson býr sem
stendur í ísafirði og þjálfar
sundfólkið þar. Við viljum
endilega fá hann aftur til okkar,
því hann er mjög hæfur þjálfari
eins og hann sýndi þegar hann
sá um þjálfunina hjá okkur í
fyrra. Ingi Þór er í Kanada og
æfir þar undir handleiðslu Haf-
þórs Guðmundssonar fyrrum
þaksundskappa úr KR, en hann
er þjálfari liðs í Edmonton að ég
held. Ingi sendir mér kort öðru
hvoru til að lofa mér að fylgjast
með hvernig gengur, og ég veit
að hann er í mjög erfiðu æfinga-
prógrammi og er hreinlega að
drepast úr þreytu. Miðað við
það er árangur hans á heims-
leikunum fyrir skömmu mjög
góður og sýnir að hann á enn
töluvert eftir inni. Ef hann nær
að æfa sig upp úr þreytunni þá á
hann að geta bætt sig og náð lág-
marksárangri fyrir Olympíu-
leikana.“
Ný sundlaug: Sjálfsögð
og eðlileg krafa til
bæjaryfirvalda.
Nú hefur komið fram að það
er viss lægð að skella á í sundinu
á Akranesi, það vantar meiri
breidd í hópinn fyrir neðan þá
sem senn leggja keppnissund-
bolina og skýlurnar á hina
margumtöluðu hillu. Eðlileg
endurnýjun hefur ekki orðið
meðal annars vegna þess að
sundfólkið æfir lengur en áður
og er þá í vegi fyrir yngri krökk-
um. Hvað er til ráða og hvert
stefnir í sundmálum ÍA?
„Eg hef trú á því að við getum
hangið í 1. deildinni í sundinu,
en það er spurning hvenær upp
57