Íþróttablaðið - 01.08.1983, Síða 66

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Síða 66
veggjum, styrkveitingar upp í leigukostnað og að leiga er í engu tengd byggingarkostnaði, þá er vísað á bug þeirri staðhæf- ingu í garð bæjar- og sveitarfé- laga að leiga íþróttahúsa sé það há, að hin frjálsu íþróttafélög hafa ekki efni á að taka og nýta aðstöðuna. Vandinn við starfrækslu hinna stóru sala er að forráðamönnum íþróttafélaga skiljist hversu þeir geta nýtt salina, með notkun færanlegra veggja, svo að fleiri félagsbundnir iðkendur komist að og þá við lægri leigu og al- menningur fái auknar iðkenda- stundir. Þorsteinn Einarsson Athugasemd við athugasemdina: Bygging íþróttahúsa er mikið framtak... og því þarf framsýni að vera í fyrirrúmi Athugasemdir Þorsteins Ein- arssonar fyrrverandi íþróttafull- trúa ríkisins við ritstjórnarspjall mitt í 2. tbl. íþróttablaðsins 1983 gefa raunar tilefni til ítarlegrar umfjöllunar um stöðu og skipu- lag bygginga íþróttahúsa og ann- arra íþróttamannvirkja á íslandi á undanförnum áratugum, en miklu rými verður þó ekki eytt til svara að sinni. Ljóst er að við verðum seint sammála um þessi mál. Þorsteinn virðist alltaf jafn undrandi þegar gagnrýni kemur fram á þá stefnu sem ríkt hefurog flokkar slíkt undir persónulegar árásir á sig og einhverja aðra, og ég verð alltaf jafn undrandi á því að hann skuli vera ánægður og telja ástandið harla gott. í upphafi greinar sinnar segir Þorsteinn að þar sem íþrótta- blaðið sé málgagn íþróttasam- bands íslands mætti ætla að rit- stjórnargreinar blaðsins væru samdar „í höfuðstöðvum íþrótta- málanna“. Honum rétt til glöggvunar skal það upplýst að venja er að ritstjórar blaða semji sjálfir ritstjórnargreinar og beri persónulega ábyrgð á þeim. Hef- ur svo verið með íþróttablaðið og verður vonandi, hver svo sem ritstjóri blaðsins er á hverjum tíma. Og það er skoðun undirrit- aðs að íþróttablaðið eigi að vera opið fyrir gagnrýni hvort sem hún kemur frá ritstjórn blaðsins eða öðrum og hvort sem sú gagnrýni beinist að opinberum aðilum, íþróttahreyfingunni sjálfri, blaðinu eða öðru. Tel ég það líka í samræmi við stefnu framkvæmdastjórnar íþrótta- sambands íslands og bendi á, máli mínu til stuðnings, grein sem einn af framkvæmdastjórn- armönnum ritaði í 1. tbl. Frétta- bréfs ÍSÍ. þar sem beinlínis var hvatt til gagnrýni á íþróttaforyst- una og lýst eftir henni. Svo lengi hefur undirritaður fylgst með íþróttamálum hérlendis að vita með vissu að forystumenn íþróttahreyfingarinnar eru langt frá því að vera ánægðir með þá stefnu sem fylgt hefur verið í byggingu íþróttahúsa á íslandi, og man ég t.d. ekki betur en að Þorsteinn hafi sjálfur setið undir slíkri gagnrýni, t.d. á ársþingum HSÍ. Það er því að mínu mati ekki á skjön við skoðanir íþrótta- hreyfingarinnar þótt gagnrýni sé sett fram á íþróttahúsabygging- arnar í tíð Þorsteins sem íþrótta- fulltrúa ríkisins. Margt af því sem Þorsteinn bendir á í athugasemdum sínum við ritstjórnarspjall mitt er þó rétt. T.d. er ég enginn sérfræð- ingur í byggingu slíkra húsa og horfi á málið meira sem leik- maður og áhugamaður um íþróttir. Það sem t.d. var sagt um íþróttahús á Norðurlöndum byggðist eingöngu á persónulegri reynslu minni. Ég hef komið þar í allmörg íþróttahús og lýsti aðeins því sem fyrir augu bar. Því fer þó vitanlega fjarri að ég hafi komið í öll íþróttahús í þessum löndum og sú alhæfing sem kom fram í ritstjórnarspjallinu er því vitan- lega gagnrýniverð. Það getur meira en vel verið að það hafi verið hrein tilviljun að ég kom í hvert íþróttahúsið af öðru sem greinilega var byggt eftir sömu teikningu og var með þeim bún- aði sem lýst var í ritstjórnar- spjallinu og svipaði til íþrótta- miðstöðvarinnar í Vestmanna- eyjum. En undarleg verður sú tilviljun þó að teljast. Sú atburðarás sem Þorsteinn lýsir við undirbúning bygginga íþróttahúsa sýnist mér staðfesta í meginatriðum það sem ég var þó fyrst og fremst að gagnrýna í umræddri ritstjórnargrein. Það, að engin heildarstefna var ríkj- andi. Hver bygginganefnd fyrir sig velur hönnuði og það er látið nægja að fara í skoðunarferðir til annarra sem þegar hafa komið sér upp húsi til þess að kynnast kostum þeirra og göllum. Hönn- 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.