Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 70
UUULJLJLJU
Frá Sambandsstjórnarfundinum 16. apríl s.l. Fulltrúar sérsambanda og héraðssambanda ásamt fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ og gestum.
Mörg mál til umfjöllunar á
sambandsstjórnarfundi ÍSÍ
Sambandsstjóriiarfundur
ÍSf var haldinn að Hlégarði,
Mosfellssveit 16. apríl sl.
Meðal gesta við setningu
fundarins voru Gísli Hall-
dórsson, heiðursforseti ÍSÍ,
Reynir G. Karlsson íþrótta-
fulltrúi ríkisins, Magnús
Sigsteinsson oddviti Mos-
fellshrepps og Páll Guð-
jónsson sveitarstjóri
hreppsins.
Forseti ÍSÍ, Sveinn Björnsson,
minntist í upphafi Jóhannesar
Sæmundssonar fræðslustjóra ÍSÍ
en hann lést 10. apríl sl. og dr.
Kristjáns Eldjárns fyrrv. forseta
Íslands, en hann lést 14. sept-
ember sl. Vottuðu fundarmenn
hinum látnu virðingu sína með
því að rísa úr sætum.
f setningarræðu sinni rakti
Sveinn Björnsson helstu mál er
höfðu komið til afgreiðslu hjá
framkvæmdastjórn ÍSÍ hjá
íþróttaþingi sem haldið var 4. og
5. september sl. Ennfremur lagði
framkvæmdastjórnin fram vand-
aða skýrslu yfir framangreint
tímabil.
Mörg mál lágu fyrir fundinum
og gerðar voru ýmsar ályktanir
og samþykktir og verður hér get-
ið þeirra helstu:
1. Samþykkt var skipting á út-
breiðslustyrk ÍSÍ milli sér-
sambandanna en samtals
nemur styrkurinn til 17 sér-
sambanda ÍSÍ kr. 2.200.000 á
árinu 1983.
2. Reynir G. Karlsson íþrótta-
fulltrúi ríkisins hafði fram-
sögu um íþróttabrautir
framhaldsskólanna og sam-
starf Menntamálaráðuneyt-
isins og ÍSÍ um námsefni.
Taldi hann líklegt að um 400
einstaklingar í 13 skólum
væru við slíkt nám nú. Var
70