Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 78
A útivelli
Launahækkun
stjórans
Johna McGover sem var
fyrirliði Notthingham Forest
þegar félagið vann Evrópubik-
arinn 1979 og 1980 er nú
framkvæmdastjóri hjá Bolton
Wanderes. Hann samþykkti
nýlega 10% lækkun á launum
sínum og að gera sér gamlan
bíl að góðu, til þess að leggja
sitt af mörkum til sparnaðar,
en félagið er mjög illa statt
fjárhagslega.
Bilardo elskar
knattspyrnu
Carlos Bilardo hefur nú
tekið við stjórn argentínska
knattspyrnulandsliðsins í stað
Cesar Luis Menotti. Bilardo
sem er 42 ára að aldri er fyrr-
verandi knattspyrnumaður og
lék t.d. með Estudiantes de Ia
Plata árið 1968, en það ár
sigraði liðið Mancester United
í úrslitaleik um hinn svo kall-
aða heimsbikar í vægast sagt
sögulegum leik, þegar leik-
mennirnir börðust með hnúum
og hnefum. Áður en Bilardo
tók við landsliðinu var hann
framkvæmdastjóri Estudiantes
og sjálfur hefur hann sagt að
fyrir sér sé knattspyrnan meira
virði en fjölskylda sín.
Pele situr fyrir
Knattspyrnustjarnan Pele
er alltaf jafn vinsæll. Myndin
var tekin er bandaríski list-
málarinn Eliane de Kooning
var að ljúka við að mála mynd
af stjörnunni, en hún lét svo
um mælt að Pele væri einstak-
lega góð og þolinmóð fyrir-
sæta.
Ný Olga
Sovétmanna
Flestir sem fylgdust með
Ólympíuleikunum í Munchen
1972 hrifust mjög af sovésku
fimleikastúlkunni Olgu Kor-
but. Nú hafa Sovétmenn
eignast nýja fimleika Olgu,
sem ber eftirnafnið
Bitscherowa og vel kann svo
að fara að hún feti í fótspor
nöfnu sinnar á Ólympíuleik-
unum í Los Angeles. Á
Evrópumeistaramótinu í fim-
leikum sem nýlega fór fram í
Gautaborg í Svíþjóð vann
þessi 16 ára stúlka þrenn gull-
verðlaun, í stökki, gólfæfing-
um og í fjórþraut.
J
78