Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 82

Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 82
„GAMLAR KEMPUR” NEITAÐITILBOÐIFRÁ ST. MIRREN í SKOTLANDI Kári Árnason er einn af al- skemmtilegustu knattspyrnu- mönnum. sem frá Akureyri hafa komið. Hann var og er enn sérlega vel byggður íþróttamaður með mikla snerpu og líkamsstyrk þrátt fyrir að vera fremur lágvax- inn. Sem knattspyrnumaður var hann óvenju sprettharður og notfærði hann hraðann vel til að stinga varnarmenn mót- herjanna af og komast í marktækifæri. Og það nýtti hann alla jafna mjög vel og skoraði fjölmörg mörk á keppnisferli sínum, þar á meðal milli 50 og 60 í 1. deildinni. Árið 1968 varð Kári markakóngur í 1. deild ásamt þeim Helga Númasyni úr Fram og KR-ingnum Ólafi Láurssyni, en þeir skoruðu 8 mörk hver. Þá léku 6 lið í 1. deild og lék hvert lið því aðeins 10 leiki í keppninni um íslandsmeistaratitilinn (sbr. 18 leiki í ár). Kári Árnason lék allan sinn feril með Í.B.A. en hann er KA-maður og lauk keppnis- ferli sínum undir merkjum KA eftir að Akureyrarfélögin hættu að senda sameiginlegt lið undir nafni íþróttabanda- lagsins til þátttöku í knatt- spyrnumótum. Það var veruleg eftirsjá að Í.B.A.-liðinu sem var með þeim allra skemmtilegustu á síðari helmingi sjöunda ára- tugarins, varð fjórum sinnum í röð í 3. sæti íslandsmótsins, 1965—1968, Nokkrir þessara Akureyr- inga léku á sínum tíma með íslenska landsliðinu, oftast þeir Kári Árnason og Jón Stefánsson, sem báðir léku 11 landsleiki. Það skrýtna var að þeir 11 leikir sem Kári lék dreifðust á 12 ár, en hann var aðeins 17 ára gamall þegar hann 1961 á sínu fyrsta ári sem fyrstudeildarleikmaður var valinn í íslenska landslið- ið. Síðast lék Kári fyrir íslands hönd árið 1972, en það ár lék Í.B.A. í 2. deild. Ferill Kára Árnasonar sem leikmanns í eldlínu íslenskrar knattspyrnu spannar 16 ár en hann var ekki við eina fjölina felldur hvað íþróttir snertir, heldur fjölhæfur í meira lagi og hann er enn að, síkvikur og vel á sig kominn. Byrjaði í frjálsum íþróttum, æfði fimleika ásamt knatt- spyrnunni, nú á fullu í bad- minton, en skíði uppáhaldið! „Ætli ég hafi ekki byrjað í frjálsum íþróttum um svipað leyti og ég byrjaði í knatt- spyrnunni. Mínar helstu greinar voru spretthlaup, einkum 60 m, langstökk og stangarstökk, en í síðast nefndu greininni setti ég ein- hverju sinni íslandsmet sveina er ég stökk 3.40 m. Nú, svo æfði ég lengi fimleika með fótboltanum og tel mig hafa haft mjög gott af því. Þegar keppnisferlinum í knattspyrn- unni lauk hóf ég að æfa badminton og fór fljótlega að keppa á Akureyrarmótum í íþróttinni svo það má segja að ég hafi ekki hætt heldur skipt um íþróttagrein. Ekki má gleyma skíða- íþróttinni sem ég held mikið upp á. Það er ekkert skemmtilegra en að vera á skíðum í góðu veðri.“ Önnur áhugamál? „Það er eiginlega ekki hægt að tala um neitt slíkt. Ég er mjög heimakær maður, en er auk þess alæta á íþróttir, sannkallaður „sportidjót“ og í það fer töluverður tími. íþróttir hafa alltaf verið stór þáttur í mínu lífi, bæði sem atvinna (Kári er íþróttakenn- ari að atvinnu, innskot íþróttablaðsins) og sem áhugamál númer, eitt, tvö og þrjú.“ Eftirsjá frá knattspyrnuferl- inum? „Án þess að vilja gera mikið úr því þá er það eitt atriði sem ég hugsa stundum um og velti 82

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.