Íþróttablaðið - 01.08.1983, Page 83
KÁRI ÁRNASON KNATTSPYRNUMAÐUR
í því sambandi fyrir mér hvort
ég hafi tekið rétta ákvörðun.
Ég fór 17 ára ásamt Þórólfi
Beck og Valsmanninum Orm-
ari Skeggjasyni til skoska fé-
lagsins St. Mirren að undirlagi
Murdo Mc Dougall. Við
dvöldum við æfingar í Skot-
landi í 10 daga eða hálfan
mánuð að afloknum landsleik
í Englandi, en að því búnu
hélt ég heimleiðis. Þegar
þangað var komið hringdi
Þórólfur í mig og sagði að fé-
lagið hefði áhuga á að fá okk-
ur báða til liðs við sig. í milli-
tíðinni hafði ég fengið jákvætt
svar við umsókn um skólavist
við íþróttakennaraskólann að
Laugarvatni og eftir nokkra
umhugsun ákvað ég að taka
námið fram yfir ævintýrin.
Að vissu leyti sé ég eftir að
hafa ekki slegið til og farið til
Skotlands, en ég hef þó ekki
yfir neinu að kvarta. Ég hef
verið mjög heppinn í sam-
bandi við mínar íþróttaiðk-
anir og með aðstoð knatt-
spyrnunnar hef ég ferðast víða
og lifað viðburðaríku lífi.“
Tengsl við knattspyrnu-
íþróttina?
„Ég telst líklega hafa frem-
ur lítil tengsl við mína aðal-
íþrótt, alla vega minni en
margir gömlu félaganna. Á
sínum tíma fékkst ég lítils
háttar við þjálfun, var meðal
annars Jóhannesi Atlasyni til
aðstoðar er hann þjálfaði KA.
Stjórnarstörfum kem ég ekki
nálægt meðan allur tíminn fer
í peningaplokk og alls kyns
betlistarfsemi. Hins vegar hef
ég safnað úrklippum úr leikj-
um KA, límt þær í möppur og
gefið félaginu, sem geymir allt
slíkt í félagsaðstöðunni í
Lundarskóla. Nú, það má
einnig nefna það að við gömlu
fótboltafélagarnir hittumst
reglulega á knattspyrnu-
æfingum, á veturna undir
Kári er sannarlega á kafi ííþróttunum ennþá. Hann er íþróttakennari, en
iðkar að auki þadminton með góðum árangri og bregður sér gjarnan á
skíði.
merkjum félaganna en á
sumrin sem Í.B.A.“
Eitthvað að lokum?
„Ég vil alls ekki gera of
mikið úr þessu íþróttabrölti
sem á manni hefur verið í
gegnum tíðina. Þetta hefur
einfaldlega verið mitt helsta
áhugamál og ástæðulaust að
gera eitthvað veður út af því.
Mér þykir miður hvað
knattspyrnan er orðin leiðin-
legri á að horfa en hér áður
fyrr. Það er leikin mun minni
sóknarknatts'pyrna en í eina
tíð þegar framlínan var skipuð
5 leikmönnum og það hafði
aftur í för með sér fleiri mörk
og opnari leiki. Nú eru fáir
leikmenn til sem skara fram úr
og flest liðin keimlík svo
knattspyrnan sem leikin er
verður lítt spennandi. En þetta
stendur vonandi til bóta.“
83