Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 86
Kalifornía —
Framhald af bls. 27
Þegar þú æfir með svona mönn-
um sérðu líka að þú hlýtur að
geta gert það sama sjálfur. Það er
bara spurning um tíma. Ég verð
mjög trúlega þarna næstu árin og
ætla að vinna vel. Næsta ár ætla
ég að æfa betur en nokkru sinni
fyrr og stefni á að ná það góðum
árangri í upphafi árs að ég verði
valinn á Olympíuleikana. Þar
sem mér skilst að ekki verði
miðað við sérstakt lágmark ætla
ég að sýna hvað í mér býr
snemma árs. En ég veit líka að
þar sem ég hef verið að bæta mig
svo ört undanfarið þá verð ég
ekki búinn að ná algjörum toppi
fyrr en eftir 3—4 ár og þá vonast
ég líka til að hlaupa á góðum
tímum.“ G.P.J.
Alabama -
Framhald af bls. 24
ingar sem unnum sigur þar, en
skólinn átti sigurvegara í 5 grein-
um svo okkar hlutur var góður.
Það er aldrei gaman að vera að
afsaka sig en ég tognaði fyrir
NCAA og varð auk þess veikur
daginn áður, þannig að ég er
ánægður með að hafa kastað
61.50, en hefði e.t.v. átt að vera að
berjast um fyrstu sætin. Það
kemur bara seinna.
Þegar maður er farinn að kasta
62—63 m er eins og fólk vilji að
maður kasti það á hverju móti.
Það er óraunhæft að reikna með
slíku. Ég vil standa mig á stærstu
mótunum úti og tel vel til þess
vinnandi en þá er líka ekki hægt
að stefna að áframhaldandi toppi
þegar heim kemur, ekki nema þá
að detta niður seinni part
keppnistímabilsins. Það er því
æskilegast fyrir okkur að stærstu
mótin hér heima séu í lok júlí og
ágúst. I ár eru reyndar stærstu
verkefnin þá, en M.í. og Kallott
eru of snemma til að líka sé hægt
að stefna að toppi þar. Ég er
bjartsýnn á framhaldið og ætla
mér að ná langt í minni grein. Til
þess að ná þei árangri sem maður
á möguleika á er nauðsynlegt að
geta einbeitt sér vel að æfingum
við góðar aðstæður. Að geta það
hefur verið minn draumur og
hann er nú orðinn að veruleika.“
r r
ISI-
Framhald af bls. 71
og efli hana af fremsta
megni.
6. Fundurinn lýsti yfir óánægju
sinni með framlag úr
íþróttasjóði til kennslu-
styrkja og beindi þeim til-
mælunr til íþróttanefndar
ríkisins að þeir verði hækk-
aðir verulega.
7. Til umræðu kom tillaga frá
framkvæmdastjóra ÍSÍ, þar
sem íþróttadeild Hesta-
mannafélagsins Fáks var
heimiluð innganga í íþrótta-
samtökin. Skoðanir voru
nokkuð skiptar um tillöguna
og samþykkt að fresta mál-
inu til að stjórnir héraðs- og
sérsambanda gætu rætt hana
nánar.
8. Samþykkt voru ný lög fyrir
Ólympíunefnd íslands.
9. Staðfestar voru lagabreyt-
ingar vegna Knattspyrnu-
sambands Islands, Badmin-
tonsambands íslands og
Skíðasambands íslands.
10. Rætt var um vaxandi ferða-
kostnað innanlands, vegna
þátttöku í landsmótum og þá
staðreynd að sum utanbæj-
arfélög treystu sér ekki til
áframhaldandi þátttöku í
þeim vegna kostnaðar.
Feröasjóöur - Framhald af bls. 71 Knattspyrnufélagið Haukar 10.000,-
íþróttabandalag Akureyrar 8.000,-
Knattspyrnufélagið Valur 8.000,-
íþróttabandalag Isafjarðar 8.000,-
íþróttabandalag Akraness 7.500,-
Fimleikafélag
Hafnarfjarðar 7.250,-
Við úthlutun úr sjóðnum var
tekið mið af viðskiptum hvers
aðila við Flugleiðir hf. á árinu
1982.
Á ný afstöðnum sambands-
stjómarfundi 16. apríl sl. var til-
kynnt um þessa úthlutun og
meðfylgjandi mynd tekin við það
tækifæri.
Athugasemd —
Framhald af bls. 69
hvernig staðið er að fram-
kvæmdum, því venjulega er
ekki tjaldað til einnar nætur,
heldur skal heil kynslóð eða
meira nýta þau mannvirki sem
verið er að reisa. Framsýni og
dugnaður er því nauðsynlegur,
en undirritaður undirstrikar þá
skoðun sína að í allmörgum til-
fellum hérlendis hafi framsýn-
innar ekki gætt á undanförnum
árum og fyrir það verði framtíðin
að gjalda. Sem betur fer eru þó
viðhorfin að verða jákvæðari og
skilningurinn meiri en verið
hefur.
Steinar J. Lúðvíksson.
UMSE -
Framhald af bls. 13
sem einkum hefur háð blak-
starfinu þar nyrðra er skortur
á æfingahúsnæði, en blakmenn
UMSE hafa verið á hrakhól-
um og raunar haft algjöra lág-
marksaðstöðu til æfinga. Er
árangur þeirra á undanförnum
árum enn athyglisverðari fyrir
bragðið. Þess má geta að á
umræddu þingi UMSE var
einnig samþykkt ályktun þar
sem lýst var yfir mikilli
óánægju með þann seinagang
sem ríkir við uppbyggingu
íþróttamannvirkja í Eyjafirði.
86