Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 18

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 18
Svifdrekaflug yrði og búum að henni. Einnig er sumarið stutt hjá okkur og skýjahæðin lítil. Verðum við því að nýta hvert tæki- færi sem gefst til flugs þó skilyrðin séu kannski ekki eins og best verður á kosið. Fyrst þegar við fórum með landslið- inu til keppni var farið til Skotlands og vorum við ósköp litlir samanborið við þessa frægu karla sem þarna voru sam- an komnir. Við töldum okkur ekki hafa roð við þessum mönnum en raunin varð önnur. Nokkru fyrir keppnina voru allir keppendurnir saman komnir uppi á fjalli og átti að taka eitt æfingar- flug. Skilyrðin voru vægast sagt léleg og enginn komst á loft af þeim tuttugu sem fyrst reyndu sig. Þá fóru tuttugu til viðbótar og sagan endurtók sig. Þá stóð okkur íslendingunum ekki á sama, við vorum farnir að halda að flugskilyrðin væru mun verri en okkur sýndist. En röðin var komin að okkur og við urðum að prófa eins og hinir þótt það væri okkur þvert um geð. Við spenntum okkur við drekana, hófum okkur til flugs og merkilegt nokk, flugskilyrðin voru alls ekki svo slæm á íslenskan mælikvarða. Við kunnum að berjast við lítið og lélegt uppstreymi og náðum okkur upp, öllum og þá ekki síst okkur til mikillar undrunar. Það segir hins vegar ekki alla sög- una þótt íslenska liðið hafi komist á loft og hafi flogið meðan aðrir fundu ekki byr undir sína vængi. Erlendu keppinautarnir hafa mun meiri reynslu í langflugi, þeir geta náð mun meiri hraða en við og keyra mun betur á milli hitauppstreyma." En hvernig fór þetta fyrsta mót ykk- arí útlöndum? „Við unnum það.“ FÉLAGSLÍFIÐ Hvernig stendur á því að svifdreka- flug er einkum stundað á Suðvestur- landinu? Nú finnast hærri og brattari fjöll annars staðar á landinu. „Einfaldlega vegna þess að hér á Suðvesturhorninu eru einhver bestu skilyrði til svifdrekaflugs á landinu. Það er mikill misskilningur að við þurfum há fjöll. Við leitum að upp- streymi og það er ekki sjálfgefið að það sé til staðar í þröngum Ijörðum umluktum háum og bröttum fjöllum. í nágrenni Reykjavíkur eru nokkrir stað- ir öðrum betri til svifdrekaflugs og velj- um við staðina eftir vindátt. Einn af flugstöðunum okkar er við Sandskeið og köllum við hann „Litla hang“. Það er ekki fjall heldur 40 metra hár hóll og oftast Iátum við nægja að fara upp háif- an hólinn. Við hann er oft ágætt upp- streymi sem við getum notað til að komast í háar hæðir.“ Fullkominn útbúnaður kostar því ekki mikið. Rekstrarkostnaðurinn er sáralítill og það kostar ekkert að fljúga um loftin blá. En sumarið er stutt hjá okkur og oft er freistandi að fljúga á fögrum dögum þótt ekki sé hefðbund- inn frídagur. Við þrír erum allir það heppnir að vinna sjálfstætt og getum skroppið frá þegar fluglöngunin verð- ur óbærileg en það þýðir líka að við verðum að vinna á kvöldin og þær helgar sem ekki er hægt að fljúga.“ Þið eruð það heppnir að hafa vegi upp á Úlfarsfell og Vífilsfell. Að vísu ekki malbikaðar hraðbrautir heldur jeppaslóða, er jeppinn jafn nauðsynleg- ur og svidfrekinn? „Nei, það flýgur enginn langt á jeppa! Hitt er annað mál að gott er að hafa aðgang að jeppa og smjaðra þá pínulít- ið fyrir jeppaeigandanum í hópnum. En það hefur aldrei verið neitt vandamál að komast á flugtaksstaðinn ef áhug- inn er fyrir hendi á annað borð.“ Mesta úrval landsins ... hjá okkur Al T A 1 nlPAII>l I > ÚTILÍF" NámskeiÖ • Ráögjöf • HugbúnaÖur TÖLVUFRÆÐSLAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.