Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 58

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 58
Körfubolti mönnum og mun það án efa setja svip á leik þeirra. Stærsta breyting er missir miðherj- ans stóra ívars Websters sem mun leika með 1. deildar liði Þórs á Akur- eyri. Kristinn Kristinsson er farinn í framhaldsnám til Bandaríkjanna. Svo verður ívar Ásgrímsson frá æfingum og keppni fram að áramótum en hann fingurbrotnaði á æfingu um daginn. Haukar eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og mæta ákveðnir til leiks. Styrkur liðsins liggur hjá langbesta bakverði landsins Pálmari Sigurðssyni og Ólafi Rafnssyni, Henn- ing Henningssyni og Ingimari Jónssyni sem lék með UMFN í fyrra. Liðið hefur einnig marga efnilega leikmenn í 2. flokki, sem koma til með að fá eldskírn í úrvaldsdeildinni í vetur. Eitt er víst að Haukar þurfa ekki að kvíða framtíðinni, því yngri flokka þjálfun hefur alla tíð verið í frábærum höndum Ingvars Jónssonar og efnivið- ur hjá félaginu því mikill og góður. KR Þjálfari: Gunnar Gunnarsson Mikil breyting verður á liðsskipan KR-inga, því landsliðsmennirnir Birgir Mikaelsson og Páll Kolbeinsson eru báðir farnir til háskólanáms í Banda- ríkjunum. Þeir munu báðir leika með sínum skólum; Birgir hjá Tarkio há- skólanum í Missouri fylki en Páll með háskólanum í Oshkosh í Wisconsin fylki. KR-ingar þurfa þó engu að kvíða, því þeir eiga góða liðsbreidd stórefni- legra leikmanna. Styrkur þeirra er fyrst og fremst í Garðari Jóhannssyni, Guðna Guðnasyni, Þorsteini Gunnars- syni og Akureyringnum Guðmundi Björnssyni. Þeir hafa endurheimt Ólaf Guðmundsson sem lék með háskólaliði í Kentucky fylki sl. vetur og verður KR-liðið til alls líklegt í vetur. Fyrirfram virðast UMFN og VALUR hafa mesta reynslu og getu til að sigra í mótum vetrarins. KR, ÍBK, HAUKAR og FRAM hafa öll góðum einstakling- um á að skipa og geta komið á óvart. Sennilega setja þó KR og ÍBK meiri svip á keppni efstu liðanna en það get- ur enginn afskrifað lið Hauka og Fram. Það er alveg ljóst að keppni og úrslit úrvalsdeildarinnar hafa aldrei verið meira spurningamerki. Það gefur ótví- 58 ræða vísbendingu um spennandi keppni sem ræðst ekki fyrr en flautað verður af í síðasta leik úrvalsdeildar- innar. l.deild Liðin sem skipa 1. deild eru ÍR, ÞÓR, UBK, ÍS, UMFG og TINDASTÓLL. All- miklar breytingar hafa orðið á flestum iiðum 1. deildar sem vert er að gefa nokkurn gaum. ÍR-ingar, sem féllu úr úrvalsdeild hafa ráðið landsliðsþjálfarann Einar Bollason og ætla sér mikla framtíð og markvissa uppbyggingu. Tindastóll frá Sauðárkróki vann sig upp úr 2. deild með Kára Marísson (áður UMFN) í broddi fylkingar ásamt unglingalandsliðsmönnunum Eyjólfi Sverrissyni og Haraldi Leifssyni. Þór á Akureyri hefur ráðið miðherj- ann stóra og sterka ívar Webster til að taka við þjálfun á liðinu og leika jafn- framt með. Grindvíkingar hafa ráðið bandarísk- an þjálfara að nafni Richard Ross en sá hefur verið aðstoðarþjálfari Jim Dool- ey, sem þjálfaði ÍR og landsliðið fyrir 3 árum. Körfuboltinn hefur vaxið jafnt og þétt og í Grindavík á síðustu árum og eiga þeir meðal annars efnilegasta körfuboltamann sem fram hefur komið á íslandi í fjölda ára en hann heitir Guðmundur Bragason. Af þessari upptalningu má sjá að keppni 1. deildar og ekki síst Bikar- keppni KKÍ verður án efa spennandi. þjóðamót á íslandi um áramótin. Norð- urlandamót verður haldið í Danmörku í apríl og sennilega tekur landsliðið þátt í Evrópukeppni smáþjóða sem fram fer I furstadæminu Mónakó í lok maí. Landsliðið á einnig heimboð frá mörgum löndum sem á eftir að skoða. Þessi vetur mun sjálfsagt mest fara í undirbúning fyrir Evrópukeppni og undankeppni Ólympíuleika en þessi mót verða keppnistímabilið 1987—88. Landslið kvenna. Það helsta á stefnuskrá kvenna- landsliðsnefndar verður að koma á fót unglingaráði kvenna, sem velji og und- irbúi unglingalið kvenna til þátttöku í Norðurlandamóti unglingalandsliða kvenna í Noregi í apríl n.k. Gnglingalandsliðin: Helstu verkefni verða Norðurlanda- mót unglingalandsliða í Noregi í apríl. Drengjalandsliðinu hefur verið boðið á undirbúningsmót í Portúgal aður en það tekur þátt í Evrópukeppni drengjalandsliða í Englandi í apríl. ís- land er þar í riðli með Frökkum, Belg- um, Englendingum og Skotum. Unglingalandsliðið fær heimsókn frá úrvalsliði unglinga úr Kentucky fylki í Bandaríkjunum næsta sumar og líkur eru á því að unglingalandsliðinu verði boðið að taka þátt í 30 liða skólamóti í borginni Las Vegas í Bandaríkjunum næsta sumar. Landslið karla: Stefnt verður að því að halda fjöl- Þessi vinsælu sportstígvél eiga að vera til í hverri sportvöruverslun. Við seljum þau í heildsölu til verslana. Heildverzlun Ancl résar Guðnasonar BOLHOLTI 4 • SÍMI 686388

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.