Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 60
Handbolti
Sigurgísla munu með sinni reynslu og
hörku verða þeim yngri stoð og stytta.
Víkingar verða því að öllum líkindum í
toppbaráttunni eins og þeir hafa verið
undanfarin ár.
STJARNAN - Þjálfari: Páll
Björgvinsson
Stjarnan hefur misst Brynjar Kvaran
markvörð en fengið í staðinn Sigmar
Þröst. Stjarnan heldur að mestu sínum
mannskap og hefur fengið Pál Bj. til
liðs við sig sem mun styrkja liðið til
muna. Páll hefur unga og efnilega
stráka sem þarf að temja t.d. Gylfa og
Hermund. Þeir eru miklar fallbyssur
sem þarf að hafa stjórn á svo og Sigur-
jón í horninu — einn betri hornamað-
ur 1. deildar. Stjarnan mun verða í bar-
áttunni á toppnum og verður gaman
að fylgjast með þeim.
FH — Þjálfari: Viggó
Sigurðsson
FH liðið með Þorgils Óttar í farar-
broddi mun örugglega vera í toppbar-
áttunni. Margir ungir strákar í ung-
linga- og piltalandsliðinu eru geysilega
efnilegir t.d. Héðinn Gilsson einn skot-
fastasti leikmaður í íslenskum hand-
bolta í dag. FH liðið þarf ekki að kvíða
framtíðinni með svona marga unga og
efnilega stráka.
FRAM — Þjálfari: Per
Skaarup
Framliðið hefur ráðið til sín Dana
(Per Skaarup) sem hefur spilað fyrir
danska landsliðið og var þeirra stoð og
stytta í fjöldamörg ár. Það verður gam-
an að sjá hann verjast fallbyssum okk-
ar. Fram hefur fengið til liðs við sig þá
Birgi Sigurðsson og Guðmund A. Jóns-
son báða úr Þrótti en misst Dag Jóns-
son. Ef Fram nær ekki langt núna þá
hvenær? Egill stórskytta, markahæsti
leikmaður síðasta árs verður örugg-
lega í banastuði í vetur. Hermann í
horninu og Biggi á línunni, Addi í
markinu og Per á miðjunni, aldeihs
gott lið á pappírnum. Fram hefur alla
getu og burði til að vera í toppbarátt-
unni en oft hefur því verið spáð vel-
gengni en alltaf brugðist. Sjáum hvað
setur í vetur. Ég spái að liðið lendi
ofarlega í ár.
VALUR - Þjálfari: Jón
Pétur Jónsson
Valur var það lið sem flestir reikn-
uðu með að myndi vinna íslandsmótið
í fyrra en svo fór ekki. Nú hafa þeir
misst þá Þorbjörn Jensson og Ellert
Vigfússon og Jón Pétur er ekki lengur
leikmaður með liðinu. Engu að síður
verður gaman að fylgjast með Val því
þar eru samt sem áður enn 4 landsliðs-
menn. Þeir eru: Valdimar Grímsson,
fljótur hornamaður sem á þó eftir að
temja sig, Geir Sveinsson, sterkur línu-
maður og varnarmaður, Júlíus Jónsson
bomban í liðinu og Jakob Sigurðsson,
eldljótur hornamaður. Valur hefur
fengið til liðs við sig þá Stefán Hall-
dórsson og Pálma Jónsson sem land-
inn þekkir vel. Aðra er varla hægt að
minnast á. Valur á alla möguleika á að
vera í toppbaráttunni með þessa menn.
Ekki má gleyma gömlu kempunni
íslenska landsliðið virðist greinilega hafa allan forgang í ár sem endranær á kostnað deildarkeppninn-
ar.
60