Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 59
NÝ KYNSLÓÐ AÐ
KOMA FRAM??
íslands- og bikarmeistarar Víkings 1986.
Texti: Gísli Óskarsson.
1. deild karla í handknattleik hefst 8.
október næstkomandi og verður þá
spiluð heil umferð. Ný kynslóð fær nú
að öllum líkindum að sína hæfni og lip-
urð á fjölum hallarinnar þó að hinir
reyndu gefi þeim trúlega lítt eftir. Ég
hef trú á að þetta verði ár ungu kyn-
slóðarinnar og verður gaman að íylg)-
ast með henni í hinni hörðu keppni
eins og 1. deild karla er. Talsverðar
breytingar hafa átt sér stað á fyrir-
komulagi íslandsmótsins því nú leika
10 lið í staðinn fyrir 8 lið áður og er
spilað með sama fyrirkomulagi og í fót-
bolta. Það fyrirkomulag þekkja allir —
spilað er heima og heiman og sá sem
stendur uppi sem sigurvegari er því ís-
landsmeistari. Ég vil ekki rifja upp
gömlu regluna því hún var afleit.
1. deild karla verður enn einu sinni
að lúta fyrir landsliðinu. Því verða
nokkrar eyður í mótinu og líklega
erfitt að viðhalda áhuga áhorfenda,
leikmanna og jafnvel blaðamanna.
Furðulegt er hve félögin standa illa
saman gegn fyrirkomulagi H.S.Í. sem
vitaskuld vill fá sem flesta leiki til að ná
inn tekjum. Þetta ár átti að vera hvíld
fyrir landsliðið eða öllu heldur áttu
æfingar að vera í lágmarki. íslandsmót-
ið byrjar 8. október, síðan er næsti leik-
ur 12. október, þá 10 daga hlé. Síðan
leikin ein umferð og þá mánaðarhlé til
19. nóvember en þá eru leiknar sex
umferðir til 11. desember. Sem sagt
hvert lið spilar 6 leiki á 21 degi. Lands-
liðið stóð sig frábærlega vel á heims-
meistaramótinu og átti þá einmitt að
reyna að ná til fólksins með því að raða
niður leikjum með réttu hugarfari.
Forráðamenn liðanna og H.S.Í. eiga að
vinna saman og fá fjölmiðla einnig til
samstarfs. Til stóð að ráða mann sem
átti eingöngu að sjá um 1. deildina en í
honum hefur ekki enn heyrst. Ef þetta
er ekki rétti tíminn til að fá fólk á leiki
eftir frábæra frammistöðu landsliðsins
þá hvenær? Niðurröðun leikja er
greinilega ekki til þess fallin að laða að
áhorfendur nema síður sé. Hæpið er að
félögin hafi samþykkt þetta fyrirkomu-
lag.
En lítum aðeins á leikina í 1. deild-
inni. Eftir áramót er byrjað 3. og 4.
janúar og leikin ein umferð svo og 14.
og 15. janúar. Þá tekur við mánaðarhlé
til 20. febrúar. Mótinu lýkur síðan 4.
apríl. Þjálfarar liðanna eru ekki öfunds-
verðir af því hlutverki að halda mann-
skapnum í æfingu. Sérstaklega þjálfar-
ar þeirra liða sem hafa landsliðsmenn
innan sinna raða.
Eftirfarandi 10 lið leika í 1. deild
karla:
VÍKINGUR - Þjálfari: Árni
Indriðason.
Handhafar bikar- og íslandsmeist-
aratignar. Róðurinn hjá þeim í vetur
verður erfiður ef þeim á að takast að
halda báðum titlunum því þeir hafa
misst úr liðinu nokkra frábæra leik-
menn. Má þar nefna Steinar Birgisson,
Pál Björgvinsson og Guðmund Alberts-
son. Þá mun Karl Þráinsson líkast til
ekki spila strax vegna meiðsla. En Árni
er dugmikill þjálfari og hefur góða
blöndu af reyndum mönnum og bráð-
efnilegum ungum strákum. Þeir hafa
fengið til liðs við sig Árna Friðleifsson
efnilegan strák úr Gróttu sem þegar er
farinn að berja að dyrum landsliðsins.
Kristján Sigmundsson landsliðsmark-
vörður verður að öllum líkindum í
banastuði í markinu og á eftir að fleyta
liðinu langt með sinni markvörslu.
Guðmundur Guðmundsson og Hilmar
59