Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 36
Michael Laudrup
Leikmenn Juventus á æfingu með Fauvo, Scirea, Bonini, Brio og Platini í broddi fylkingar.
dvelja í Hollandi og æfa með unglinga-
liðinu. „Það var eftir leik með KB gegn
unglingaliði Ajax að forráðamenn Ajax
töluðu við þjálfara minn og óskuðu
eftir því að ég yrði eftir í Hollandi um
tíma. Jú, við unnum leikinn 4-1 og
líklega hafa þeir séð eitthvað í mér sem
vakti áhuga þeirra. Ég hafði ekki
áhuga á að dvelja hjá Ajax en tveimur
árum síðar dvaldi ég í vikutíma hjá
Feyenoord."
HAFNAÐI LIVERPOOL
Laudrup fór aftur til Bröndby, síns
gamla félags þegar hann var 17 ára og
lék sinn fyrsta deildarleik skömmu síð-
ar. Nánast strax eftir þann leik hringdi
síminn hjá Laudrup og stórliðið Barce-
lona var á línunni. Laudrup skrapp til
Spánar en eftir að faðir hans hafði ráð-
fært sig við Allan Simonsen sem eitt
sinn lék með Barcelona var ákveðið að
sleppa þessu gullna tækifæri. Mánuði
síðar kom Liverpool inn í myndina og
bauð Laudrup 4 ára samning. Laudrup
vildi hélst ekki semja lengur en til 2 ára
— og í mesta lagi 3 ár. Hann vildi ekki
binda sig um of í byrjun atvinnu-
mannaferilsins. Laudrup feðgarnir
voru ánægðir með þá peninga sem Liv-
erpool bauð en 4 ár væri of langur
tími og því slepptu þeir þessu tækifæri
einnig. Það eru vart margir knatt-
spyrnumenn í heiminum sem telja sig
hafa efni á að hafna boði frá Liverpool
sem er einn virtasti klúbbur í heimi. En
langaði Laudrup ekki til Liverpool?
„Jú, ég hefði ekkert á móti því að leika
með Liverpool en þó tel ég að knatt-
spyrnan á Ítalíu henti mér betur. í
Englandi er of mikið um kýlingar og sá
leikstíll hentar mér síður.“
LAUDRUP TILÍTALÍU
Tveimur mánuðum eftir að Laudrup
hafnaði Liverpool blandaði Juventus
sér inn í líf piltsins. Feðgarnir brugðu
sér til Torino, hittu forseta Juventus
Boniperti að máli og gengið var frá
málunum á örfáum mínútum. Laudrup
dvaldi þó um skeið í Danmörku og
kláraði sitt nám. Árið 1983 fór hann til
Ítalíu og þá sem lánsmaður til Lazio
sem er vinarfélag Juventus. „Það voru
mikil viðbrigði að koma til Ítalíu og
byrja í atvinnumennsku. Heima í Dan-
mörku er að mestu leyti um áhuga-
mennsku að ræða og því var stökkið
stórt. Hér er hægt að einbeita sér al-
gjörlega að fótboltanum en heima
þurfti maður að vinna í 8 tíma áður en
farið var á æfingu. Það var mér góð
reynsla að byrja hjá litlu félagi eins og
Lazio og komst ég þar í kynni við
36