Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 31
Úlfar Jónsson
Síðasta daginn lék ég vel og tryggði mér
sigurinn.”
— Þú þakkar auðvitað æfingasókn
þennan sigur?
„Það er engin spurning. Með því að
geta einþeitt mér einungis að golfi hefur
mér aldrei farið eins mikið fram og í
sumar. Ég hef bætt mig í öllu. Til dæmis
lækkaði meðalskor úr 75 höggum 1985
í 72,8 högg 1986 sem er mikið því þetta
eru margir hringir, og mun fleiri en í
fyrra. Það er ekki hægt að Iíkja því sam-
an að geta hafið æfmgar snemma morg-
uns og æft allt í kannski 4 tíma á meðan
maður tók kannski bara eitthvað eitt
fyrir þegar maður var að vinna til kl. 5
áður. Eigi ísland að eignast golfara á
alþjóðlegum mælikvarða er þetta eina
leiðin, leyfa þeim að stunda íþróttin og
ekkert annað.
Atvinnumennska í
augsýn?
Að loknu Íslandsmóti helt Úlfar til
Skotlands til að keppa í svokölluðu
Doug Sanders golfmóti, sem samnefnd-
ur maður stendur fyrir. Mót þetta er tal-
ið vera eitt sterkasta unglingamót sem
haldið er og fer fram í fjórum heimsálf-
um. Sigurvegarar af hverjum stað
keppa svo til úrslita um sigurinn. Úlfar
keppti fyrst í þessu móti 1984 og end-
aði þá í þriðja sæti á 286 höggum,
tveimur höggum yfir pari og þótti frá-
bært. í blaði rétt fyrir keppnina í sumar
mátti sjá að nú ætlaði Úlfar að freista
þess að sigra í keppninni. En hvernig
gekk svo baráttan í Skotlandinu?
„Þetta gekk mjög vel. Ég náði forystu
fyrsta daginn en tapaði henni til Skota í
næsta hring. Munurinn á okkur var
mjög lítill allan tímann og aðeins 3 högg
í lokin honum í vil. Hann sigraði á 10
höggum undir pari, ég á 7 undir, besti
árangur á móti sem g hef náð. Eftir
þetta mót komst ég í +0,3 í forgjöf, en
hef hækkað aðeins síðan og er nú með
0,2.
Sem dæmi um spilamennsku Úlfars á
mótinu þá fékk hann sinn fyrsta „bog-
ey“ (einn yfir par) ekki fyrr en á 27. holu
og næsta á 50. holu! Svona gerist yfir-
leitt ekki nema hjá atvinnumönnunum.
Og einmitt fyrir frábæran árangur á
þessu móti rættist stóri draumur Úlfars,
boð um skólavist í einum virtasta há-
skóla í Bandaríkjunum.
„Doug hitti mig að máli eftir stutta
sýningu sem hann hélt sjálfur á þriðja
degi keppninnar og sagðist vilja bjóða
mér skólavist í University of Houston
Texas. Þegar ég sagði honum að ég ætti
eftir 2 ár af mínu námi sagði hann að
það breytti engu. Ég gæti bara komið
eftir það. Þetta boð hans kom flatt upp
á mig. Maður hefur látið sig dreyma um
svona lagað en að það ætti eftir að ræt-
ast átti maður ekki von á.
— Getur þetta verið stökkpallur í at-
vinnumennsku?
„í raun getur það ekki gerst öðruvísi
en í gegnum skóla, því þar fæ ég tæki-
færi til að leika á bestu golfvöllum
Bandaríkjanna og æfa við bestu aðstæð-
ur með skólaliðinu. Ég er hálfnaður
með stúdentspróf og er ákveðinn að
ljúka því áður en ég fer út til Bandaríkj-
anna þó svo að það hefði verið spenn-
andi að fara strax. En draumurinn er
auðvitað að komast í atvinnumennsk-
una þegar fram líða stundir.
Setti vallarmet í eigin
móti
— Nú ert þú búinn að keppa við jafn-
aldra þina á erlendri grund sem hafa æft
íþróttina við bestu aðstæður. Hvemig
finnst þér staðið að unglingastarfi í golfi
hér á landi?
„Þetta fer mikið eftir hvaða klúbbar
eiga í hlut. Hvað unglingalandsliðið
varðar er ég mjög bjartsýnn á hlutina
þar eftir að Hannes Þorsteinsson tók
við liðinu. Hann er mjög góður maður í
þetta starf. Hvað unglingastarf varðar
almennt hjá klúbbnum er það að segja
að það hefur verið nokkuð vel staðið að
málum t.d. hjá okkur í Keili og Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Er mikil gróska hjá
unglingum og áhugi mikill.
— í beinu framhaldi af þessu Úlfar, er
ekki dýrt að fjármagna golfara í heilt
sumar. Hveijir hafa áhuga á að styrkja
unga golfleikara?
31