Íþróttablaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 16
Við þurfum að læra allt um veður og
vinda niðri við jörðina og það eru
fræði sem fáir aðrir en drekaflugmenn
hafa áhuga á. Við verðum alltaf að hafa
veðruspána á hreinu og meira en það,
við þufum að læra hvar Iitlar hitalægð-
ir myndast til að geta nýtt okkur upp-
streymið og flogið yfirlandsfug. Þar
spila flughæfnin og veðurfræðikunn-
áttan saman. Við hefjum okkur til
flugs, reynum að ná góðri hæð og
fljúga sem hraðast að næstu hitabólu
og síðan koll af kolli þangað til við
komumst ekki lengra og reynum þá að
lenda þar sem auðvelt er að sækja
okkur.
Veðurfræðin er nauðsynleg og ekki
hægt að fljúga nema þekkja inn á vind-
ana. Þess vegna viðhöldum við þekk-
ingunni og sækjum stöðugt námskeið í
veðurfræði. Við erum í góðu sambandi
við veðurstofuna og veðurfræðingur
þaðan hefur Ieiðbeint á námskeiðun-
um hjá okkur."
FYRST BEINTOGLÁGT
Er drekaflug eins hættulegt og það
lítur út fyrir að vera?
„Það er verulega erfitt að svara
þessri spurningu. Það verða ekki mörg
slys í þessari íþrótt en hættan er alltaf
fyrir hendi. í þessu sporti er meira lagt
undir en í öðrum íþróttagreinum og
mistökin geta verið dýr. í drekafluginu
leyfist ekki kæruleysi og vissulega er
hægt að stunda flugið með 100% ör-
yggi en þá verða menn líka að hafa
þroska til þess og taka leiðsögn þeirra
sem lengra eru komnir.“
Þið eruð allir með kennararéttindi í
drekaflugi, hvernig fer kennslan fram?
„Við höldum námskeið einu sinni á
hverju vori þar sem mönnum eru
kennd undirstöðuatriði íþróttarinar og
síðan taka menn próf. Náminu er skipt
í fimm stig. Fyrst er mönnum kennt að
skynja drekann og fljúga bein flug við
auðveldar aðstæður og í lítilli hæð.“
Af hverju í litilli hæð, ekki er auð-
veldara að fljúga í lítilli hæð?
„Nei, það er ekki auðveldara að
fljúga í lítilli hæð heldur sálfræðilegt
atriði. Menn verða að venjast hæðinni
eins og öðru í þessari íþrótt og það er
alltaf hætta á að byrjendur fyllist skelf-
ingu og verði lofthræddir þegar þeir
átta sig á hæðinni."
Eru það einhveijar sérstakar mann-
gerðir sem leggja stund á drekaflug?
„Núna ertu að fiska eftir því hvort
við séum töffarar og það erum við
ekki. Það má segja að drekaflugið sé
fyrir allar manngerðir nema eina og
það eru svölu karlarnir. Drekaflugið á
ekki að vera keppni um kjark og þor,
menn eiga að láta aðstæðumar ráða
þvi hvort flogið er, ekki hvort sæta
stelpan er að horfa á þá eða ekki. Þetta
er heldur ekki íþrótt til að monta sig
yfir í partýum enda eru menn yfirleitt
það þreyttir eftir flugið að lítil orka er
eftir fyrir gortið.“
AÐ KYNNAST
SJÁLFUM SÉR
Er þetta mjög erfíð íþrótt?
„Það fer eftir ýmsu. Oft getur það
verið mjög erfitt að komast inn í upp-
streymi. Það getur hafnað drekanum
og þá verður flugmaðurinn að taka á
öllu sínu til þess að stýra drekanum
inn í loftbóluna. Þessi barátta getur
tekið á og kallað fram mikinn svita.
Hvernig er mórallinn meðal svif-
drekamanna hér á landi? Er erfitt fyrir
nýliða að komast inn í hópinn?
„Það er mjög góður andi innan
hópsins og við höldum mjög saman. Sá
dagur líður ekki yfir sumartímann að
drekamenn tali saman og spái í flug-
skilyrði. Reyndir menn leiðbeina
reynslulitlum og þegar flogin eru yfir-
landsflug er alltaf einhver til sem sækir
flugmanninn eða mennina.
Félagslífið hjá okkur er gott. Við
höldum fimm mót á hverju sumri auk
árshátíðar og annarra hefðbundinna
félagsstarfa. Við eigum gott klúbbhús
við rætur Úlfarsfellsins og þangað
koma margir. Borgin gaf okkur þetta
hús sem staðið hafði lengi í niður-
níðslu og var húsið reyndar úrskurðað
ónýtt. En við fengum það og gerðum
það upp. Núna er þetta hið ágætasta
hús og erlendir gestir okkar dauðöf-
unda okkur af því. Erlendis þekkjast
ekki sambærileg hús, þar verða menn-
irnir að hittast á pöbbum.
Klúbbhúsið á sinn þátt því að hóp-
urinn sem stundar svifdrakaflugið er
mjög samrýmdur. Við erum eiginlega
ein stór fjölskylda og hefur það vissa
ókosti í för með sér sér fyrir nýliða sem
kynnast vilja íþróttinni. Við gætum
virst lokaður hópur en það erum við
alls ekki. Allir sem áhuga hafa á dreka-
flugi eru velkomnir til okkar og við
fögnum hverjum nýjum manni.“
16