Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 57

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 57
BOLTI WSIÁTTUR AF SMÁ- ’ój BRAUÐUM MILU 8-10 stflrmúri fT. , | Daishmu*i FERÐAFELAG ÍSLANDS autaf í leiðinni lORIDf Bikarmeistarar Hauka 1986. Magnús Guðfinnsson til Bandaríkjanna en í staðinn fengið Gylfa Þorkelsson frá Sandgerði. ÍBK er ungt og efnilegt lið sem er alls óhrætt við andstæðingana. Leikur þeirra hefur verið frekar sveiflukennd- ur. Aðra stundina gengur allt upp en svo gengur allt á afturfótunum. Framtíðin er björt hjá þessu felagi og þurfa þeir engu að kvíða. Styrkur þeirra er í landsliðsmönnun- um Jóni Kr. Gíslasyni, Hreini Þorkels- syni, Guðjóni Skúlasyni og Ólafi Gott- skálkssyni unglingalandsliðsmanni. VALGR Þjálfari: Jon West Valsmenn hafa gætt úrvalsdeildina nýju lífi með ráðningu bandaríska (sænsk ættaða) þjálfarans Jon West frá Dubuque fiaskólanum í Iowa fylki. Valsmenn eiga hrós skilið fyrir þessa góðu íjárfestingu og ætti að vera hverju liði til eftirbreytni á 2—3ja ára fresti. Jon West var sjálfur leikmaður á sín- um námsárum, en hefur síðan þjálfað við háskólann og náð ágætum árangri. Konan hans er einnig körfuknattleiks- þjálfari og mun þjálfa og leika með kvennaliði íþróttafélags stúdenta í vet- ur. Engin breyting verður á liði Vals, en þeir hafa á að skipa mjög góðum og leikreyndum mönnum. Torfi Magnús- son er skipstjóri liðsins og langfjölhæf- asti framherji landsins. Tómas Holton er mjög útsjónarsamur leikstjórnandi og Sturla Örlygsson, Leifur Gústafsson og mjög efnilegur bakvörður Svali Björgvinsson munu verða helstu styrktarstoðir liðsins. Valsmenn hefur undanfarin ár aðeins vantað sáralítið upp á til að leika til úrslita og er ekki ólíklegt að sá bandaríski nái þessum herslumun. FRAM Þjálfari: Birgir Guðbjörnsson Framarar hafa ráðið gamalreyndan leikmann úr KR og landsliðsmann sem náð hefur góðum árangri í þjálfun yngri flokka, til að taka að sér þjálfun liðsins. Fram sigraði með yfirburðum 1. deild og byggðist sá sigur á marg- reyndum leikmönnum og endurkomu landsliðsmannsins Símonar Ólafsson- ar. Á þessari stundu er óvíst hvort Sím- on verður með og yrði það mjög baga- legt fyrir liðið. Liðið hefur líkamlega sterka leik- menn, sem gefa ekki þumlung eftir í vörn og fráköstum s.s. Þorvaldur Geirsson, Ómar Þráinsson og Björn Magnússon. Veikastir eru þeir á bak- varðastöðunni, að undanskildum Guð- brandi Lárussyni sem alltaf skilar sínu. HAOKAR Þjálfari: Jón Sigurðsson Bikarmeistarar Hauka sl. 2 ár verða nú að sjá af mörgum reyndum leik- 57

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.