Íþróttablaðið - 01.10.1986, Side 70
KA-heimilið
ins er ýmis annar rekstur í gangi.
Heimilið var í sumar opið alla daga frá
kl. 14—22, og á þeim tíma var hægt að
fá sér í svanginn á matsölustað sem þar
er.
Næsta sumar verður þarna huggu-
legasta sólbaðsaðstaða á Akureyri, að
sögn Stefáns. Þar verður 300 m2 ver-
önd girt með glervegg til skjóls íýrir
norðan og austanáttinni. Útigrillað-
staða er sunnan við húsið, og að aust-
anverðu er búið að ákveða að koma
upp 12 holu minigolfvelli. Stefnt er að
því að sem mest sé um að vera alla
daga og að KA-menn eigi sér þarna
annað heimili. Út frá því var nafnið val-
ið, KA-heimiIið.
„KA á bestu stuðnings-
mennina"
Ekkert hefur verið til sparað til að
gera húsið sem heimilislegast. Enginn
íburður en allt smekklegt og snyrtilegt,
bæði innan húss og utan þar sem
5—600 m2 hellulagt svæði og á annað
þúsund fermetra malbik setja punkt-
inn yfir i-ið. Engan undraði er Fegrun-
arnefnd Akureyrar heiðraði KA sér-
staklega í ágústmánuði fyrir frágang-
inn á félagsheimilinu og mikinn fram-
kvæmdahraða. En eitthvað hlýtur
dýrðin að hafa kostað. Hvernig fóruð
þið að þessu, Stefán?
„Þegar við byrjuðum voru engir
peningar til. Við höfðum staðið í mikl-
um vallarframkvæmdum og kassinn
var tómur. Einhvern veginn hefur
þetta samt gengið. íþróttasjoður ríkis-
ins leggur til 40% af kostnaðarverði,
það greiðist á fjórum árum. Fyrrver-
andi bæjarstjórn og bæjarstjórinn
Helgi Bergs studdu okkur með lánum
á tækjum. Við höfum verið með ýmsar
íjáraflanir vegna framkvæmdanna, en
mest munar um gjafir verktaka og
starfa sjálfboðaliða. Framkvæmdirnar
eru metnar á 15—16 milljónir og með
framlögum ríkis og bæjar næstu fjögur
árin tekst að kljúfa þetta. Næstu tvö ár
verða erfið vegna niðurgreiðslna lána
og vaxta, en etta hefst. Heimilið er
komið upp án þess að félagið skuldi
óheyrilega mikið. Áhangendur KA eiga
heiður skilinn fýrir það sem þeir hafa
lagt af mörkum í bygginguna. Ég er
ekki í vafa um að KA á bestu stuðn-
ingsmenn sem íslenskt íþróttafélag á.
70
Það er ekki á neinn hallað þó ég nefni
sérstaklega Skúla Ágústsson og bræð-
ur hans í þessu sambandi.
Svona samvinna frjáls félags og hins
opinbera, ríkis og bæjar, er að mínu viti
mjög til eftirbreytni. Ef félagið gerir
kröfur til ríkis- og bæjaryfirvalda verða
þau kröfuhörð á móti. Ég ráðlegg
þrýstihópnum sem hyggja á einhverjar
framkvæmdir til að gera fýrst kröfur til
sjalfra sín áður en farið er að heimta alt
af hinu opinbera."
í lokin laumar Stefán því að mér að
fýrsti fundur bygginganefndar hússins
hafi verið haldinn eftir að búið var að
reisa húsið! Bygginganefndin saman-
stóð af Stefáni sjálfum (formaður),
Guðmundi Heiðrekssyni formanni KA,
Hermanni Sigtryggssyni æskulýðsfull-
trúa, Jóhanni Aðalsteinssyni og Hreið-
ari Jónssyni. Þeir afgreiddu málin í
gegnum síma í stað þess að kalla alltaf
til fundar þegar taka þurfti ákvörðun.
Betra að eyða timanum í framkvæmdir
en mas um það hvað skuli gera og
hvernig! Þessi máti hefur gefist vel. Að
minnsta kosti er vandfundið glæsilegra
félagsheimili hér á landi og nýting
fermetranna er til fýrirmyndar en gólf-
flöturinn er um 270 m2 og hæðirnar
tvær.
Forystumönnum KA hefur einnig
tekist það ætlunarverk sitt að gera
staðinn að öðru heimili KA-manna,
sannkölluðum fjölskyldustað. í sumar
komu 4—500 manns á svæðið dag
hvern og þar var alltaf eitthvað um að
vera.
Byggingarsaga KA-heimilisins er
einkar lærdómsrík og sýnir hvað hægt
er að gera með dugnaði, vilja og mátu-
legri bjartsýni. Hugmyndasmiður
heimilisins Stefán Stefán Gunnlaugs-
son á heiður skilinn og þótt í mörgum
íslenskum íþróttafélögum séu til dug-
miklir og framkvæmdasamir eldhugar
held ég að flest þeirra myndu þiggja að
fá atorkumanninn Stebba Gull lánaðan
í eins og eitt ár eða svo. Hitt er svo
annað mál hvað frú Hugrún segir um
það!
Hellesens
• Vtí
Rauð fyrir
transistora
Gull fyrir
transistora
og mótora
Svört alkalin
margföld
ending.
Úra og tölvurafhlöður í úrvali
Umboðs og heildverzlun
HRÍSNES h.f.
Auðbrekku 16, Kópavogi, sími 44411