Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Qupperneq 75

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Qupperneq 75
Á heimavelli „DIEGO“ HEIMISSON Eins og gengur og gerist verða ektakvinnur íþróttamanna þungaðar annað veifið. Heimir Karlsson þjálfari ÍR í knattspyrnu og fyrrum atvinnu- maður „skoraði" hjá kærustunni Önnu Kristínu síðastliðið haust og afleiðing þess var drengur sem fædd- ist í lok júní síðastliðins. Ekki það að heimsmeistarakeppnin í fótbolta hafi haft nein áhrif á Kristínu á með- göngutímanum en þrátt fyrir það gat hún þess þegar Ijóst var að úrslita- leikurinn yrði 29.júní að hún myndi örugglega fæða á sama tíma og leik- urinn stæði yfir. Ekki vitum við um viðbrögð Heimis við ummælum kon- unnar því hann hafði vitanlega mik- inn áhuga á úrslitaleiknum — svo og barninu. Nú en það stóð heima — Anna fór á sjúkrahús og Heimir á eft- ir. Klukkan 18.50 þegar hálfleikur var í leik Argentínu og V-Þýskalands fæddist frískur drengur og Heimir var alsæll þótt hugurinn hafi verið á tveimur stöðum. A sjúkrahúsinu var sjónvarp og þegar Heimir hringdi í ættingjana horfði hann samtímis á Þjóðverja jafna leikinn. Heimir lét þess getið að drengurinn hafi strax fengið viðurnefnið Diego — í höfuð- ið á knattspyrnusnillingnum Mara- dona sem lék eins og engill í heims- meistarakeppninni. Ekki vitum við hvort „Diego“ Heimisson heldur nafninu lengi en hafi hann sömu takta og faðirinn og átrúnaðargoðið er það ekki ólíklegt. NÝTT í BÆNGM Frá og með 1. september opnar Vilborg Nielsen leikfimi- og erobikk- stöð í Hamraborg 24 Kópavogi — undir nafninu Þrekkjallarinn. Boðið er upp á frúarleikfimi, herraleikfimi og erobikk. Frúarleikfiminni er skipt í tvo hópa. Hópur 1 er fyrir byrjendur er hafa lítið sem ekkert stundað lík- amsþjálfun. Hópur 2 er framhalds- hópur og er hægt að velja um morg- untíma og síðdegistíma. Herraleik- fiminni er einnig skipt í hópa og eru þeir tímar á laugardögum eftir há- degi. Loks kemur hið geysivinsæla erobikk og er því skipt í 3 hópa. Hóp- ur 1 er fyrir byrjendur og þá sem eru í lítilli þjálfun — hópur 2 er miðlungs- erfiður og hópur 3 er þrektími fyrir þá sem eru í góðri þjálfun. Eins og sjá má er um mismunandi æfingar að ræða í hverjum tíma sem miðast við getu hvers og eins. Að- staðan í Hamraborginni er frábær — nuddpottur, gufa og ljós. (Ljósin eru á vegum Sólarlands). Einnig er setu- stofa fyrir þá sem vilja fá sér hress- ingu og slappa af eftir tímann. Vilborg útskrifaðist úr íþróttaskól- anum á Laugarvatni síðstliðið vor en hún hefur einnig kennt erobikk og frúarleikfimi undanfarin ár og er því enginn nýgræðingur í faginu. Með Vilborgu munu einungis lærðir íþróttakennarar starfa — má þar nefna Eyrúnu Ragnarsdóttur. Með- fylgjandi mynd er af þeim stöllum Vilborgu og Eyrúnu í Þrekkjallaran- um. Innritun og upplýsingar eru í síma 46191. HtlGMYNDIR Svo að lokum elsku lesendur! All- ar léttar, skondnar sögur úr heimi íþróttanna eru vel þegnar — sannar eða lognar. Vinsamlegast sendið okkur eitthvert léttmeti ef þið lumið á slíku. Það má og vera erlendis frá. Sendist á íþróttablaðið Ármúla 38, 108 Reykjavík. „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ Að boróa holla fæðu. að drekka ekki áfenga drykki. að hreyfa sig reglulega (ganga. skokka. synda). að nota ekki tóbak. að taka þátt í hugsjónastarfi. allt eru þetta lífsvenjur sem margir viðskiptavinir ÁBYRGÐAR temja sér. Þar að auki eru þeir varkárir. í umferðinni og allri breytni sinni. Þeir hugsa sitt ráð og þekkja ábyrgð sína. Og ÁBYRGÐ þekkir þá. Lífsstíll þeirra er grundvöllur þess. að ÁBYRGÐ getur veitt þeim hagstæðar tryggingar gegn lægra iógjaldi. Lífsstíll bindindis er hinn nýi heilsusamlegi lífsstfll — jákvæði lífsmáti. Lífsmáti sem borgar sig og heillar æ fleiri til sín! Lífsstíll heilbrigðis og hollustu!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.