Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 3

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 3
Ritstjóraspjal I Unga kynslóðin kemur að sjálfsögðu fyrst upp í hugann þegar maður veltir því fyrir sér hver staða íþrótta verður á íslandi eftir fimm, tíu eða fimmtán ár. Verður íþróttaiðkun í framtíðinni jafn almenn og hún er ídag? Verðafjölnota íþróttahallir byggðar, keppnisfærar innis- undlaugar og yfirbyggðir knattspyrnuvellir? Halda íþróttahús áfram að rísa í jafn miklum mæli og gerist í dag? Ná íslenskir íþróttamenn enn betri árangri á alþjóðamælikvarða eftir áratug en þeir ná í dag? Skiptir það einhverju máli fyrir íþróttir í landinu að eiga afreksmenn í íþróttum? Á að styðja við bakið á þeim sem skara fram úr eða gera öllum jafn hátt undir höfði? Er hægt að auka fjárstuðning við íþrótta- hreyfinguna með einhverjum hætti? Fjölmargar spurningar vakna þegar maður leitar eftir framtíðarsýn íþrótta á íslandi en minna verður um svör? Vissulega væri æskilegt að geta skapað íþróttamönnum fullkomna inniaðstöðu til þess ná sem bestum árangri og auka útbreiðslu íþrótta enn frekar en þrátt fyrir ýmsa óvissuþætti liggur það í augum uppi að íslensk íþróttaæska er bæði glæsilegogefnileg. Og það sem meiraer; hún hefuralla burði til þess að ná langt á heimsmælikvarða hvort sem það skiptir einhverju máli eða ekki. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að íslensk ungmenni standa jafnfætis erlendum jafnöldrum sínum í mörgum greinum. Skemmst er að minnast árangurs íslenska landsliðsins í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri sem varð í 3. sæti á heimsmeist- aramótinu á dögunum. Yngri landslið íslands í knattspyrnu hafa staðið sig frábærlega vel og sífellt fleiri strákar fá tækifæri til þess að spreyta sig með erlendum liðum að vetrarlagi. Slík reynsla er dýrmæt og skilar sér í betra A-landsliði þegar fram í sækir. Knattspyrnusamb- and íslands hefur valið úrvalshóp ungra leikmanna sem eru lands- liðsmenn framtíðarinnar — ef að líkum lætur — þannig að þegar er farið að hugað að þeim sem eiga að erfa landið. Ekki má gleyma Daníel Jakobssyni, tvítugum skíðagöngumanni, sem er kominn í fremstu röð í sínum aldurshópi í heiminum og mun án efa halda merki íslands hátt á lofti í framtíðinni. Ekki er allt upp talið þegar frábær árangur ungu kynslóðarinnar er annars vegar en það er óskandi að henni verði skapaðar aðstæður hér á landi eins og þær gerast hvað best í heiminum. Aðstöðu- og afskiptaleysi er versti óvinur íþróttamannsinsog þaðá vera metnaðarmál allrar þjóðarinnar að gera úrbætur hvað það varðar. Þorgrímur Hafsteinn Viðar Þráinsson ritstjóri auglýsingastjóri Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Þorgrímur Þráinsson Beinn sími ritstjóra: 678938 Ljósmyndarar: Gunnar Gunnarsson, Hreinn Hreinsson og Kristján Einarsson Skrifstofa ritstjórnar: Bíldshöfða 18. Sími 685380 Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson Áskriftargjald kr. 1.347,00 (4,-6.tbl) Kr.1.212,00 ef greitt er með greiðslukorti. Hvert eintak í áskrift kr. 449,00 en 404,00 ef greitt er með greiðslukorti. Hvert eintak í lausasölu kr. 539,00 Áskriftarsími: 812300 Útgefandi: Fróði hf. Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18, sími 812300 Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.