Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 17

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 17
Chris Mullin, Sarunas Marciulionis, Bill Owens og Tim Hardaway. Þessir fjórir kapp- ar voru stigahæstu leikmenn liðsins á keppnistímabilinu ’91-’92 en á síðasta tíma- bili voru þeir fjórir samtals í 2 mínútur og 37 sekúndur inni á vellinum. I sumar leit út fyrir að tímabil óheppninn- ar væri að baki þegar Warriors fékk fyrsta valrétt á nýliða í NBA deildina og útlit var fyrir að fjórmenningarnir yrðu allir heilir heilsu. Fyrsta áfallið reið hins vegar yfir í byrjun október þegar Sarunas sneri sig svo illa á hné í æfingaleik að talið er að hann leiki ekki með liðinu í vetur. Nokkrum dögum síðar fékk hinn efnilegi nýliði, Chris Webber, botnlangakast og er búist við að hann missi mánuð úr æfingabúðum liðsins fyrir vikið. Hann spilar því ekki mikið með þegar NBA boltinn byrjar að skoppa og útlitið er því ekki gott hjá Warriors — annað árið í röð. *’ James Worhty hjá LA Lakers leikur gestahlutverk í hinum geysivinsæla sjón- varpsmyndaflokki „Star Trek“ í vetur en myndaflokkurinn er vinsælasta sjónvarps- efni karlmanna á aldrinum 15-40 ára í Bandaríkjunum. Worthy sagði eftir upptök- ur á þættinum að þetta hefði verið miklu erfiðara en að spila körfubolta. „Ég er vanur því að gera hlutina hratt og þess vegna var erfitt að hægja á sér. Ég þurfti að nota heilar sex sekúndur til þess að segja þrjú orð. Ég get bara ekki talað svona hægt.“ • að ÞORVALDUR ÁSGEIRS- SON, fyrirliði hins sigursæla 2. flokks Fram í knattspyrnu, er sonur Ásgeirs Elíassonar landsliðsþjálf- ara. • að SIGRÍÐUR SOPHUSDÓTT- IR, markvörður bikarmeistara ÍA í knattspyrnu, er sonardóttir hins eina sanna Lolla í Val, Ellerts Sölva- sonar, sem gekk undir nafninu kötturinn á sínum yngri árum. • að árlega deyja um 1700 MANNS á íslandi, þar af 6-700 úr kransæðastíflu. • að helstu ORSAKIR KRANS- ÆÐASTÍFLU eru reykingar, hár blóðþrýstingur, hreyfingarleysi og neysla fæðu með of mikilli dýra- fitu. • að körfuboltamaðurinn REGG- IE LEWIS, sem lést í sumar vegna hjartaáfalls, vann ötullega að góð- gerðarmálum þótt hann væri ekki mikið fyrir að auglýsa örlæti sitt. Á hverjum þakkargjörðardegi í Bandaríkjunum gaf hann fátækum í Baltimore 1200 kalkúna. • að sex klúbbar föluðust eftir FRANK RIJKAARD þegar það var Ijóst að hann léki ekki lengur með AC Milan. Aðeins einn þeirra klúbba var frá Hollandi og Rijka- ard fór til heimalandsins — Hol- lands. • að þegar LINFORD CHRISTIE, Ólympíumeistari í 100 metra hlaupi og fyrirliði breska frjáls- íþróttaliðsins, var spurður álits á knattspyrnukappanum Paul Gas- coigne svaraði hann: „Meira að segja breskir kúluvarparar eru í betra formi en hann!" 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.