Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 22

Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 22
fyrir og á síðasta keppnistímabili og kom að mörgu leyti sterkari til leiks. Teddi (Theodór Guðfinnsson) þjálf- ari hvatti mig til þess að skjóta meira og það bar tilætlaðan árangur. Ætl- unin var að halda áfram á þessari braut fyrir þetta keppnistímabil en eftir að hafa þrívegis fengið flensu á fjórum vikum og misst lóð á tána á mér sit ég dálítið eftir í upphafi móts. Núna bíð ég eftir því að geta byrjað að æfa á fullu." — Langar þig til að bæta þig í einhverju sem leikmaður? „Já, mig langar til að bæta styrkinn og öðlast meiri snerpu í fótunum. Kannski get ég orðið meiri egóisti á vellinum, það er spurning." — Ætlarðu að lyfta á keppnistíma- bilinu? „Já, ég hef hugsað mér að gera það daginn eftir hvern leik. Stelpurnar í Noregi hafa þann háttinn á og það skilar sér hjá þeim. Þótt maður bæti ekki miklu við sig með því að lyfta lóðum einu sinni í viku þá finnst mér ég verða sterkari fyrir bragðið. Sál- ræni þátturinn í þessu er mikilvæg- ur." — Þú ert sem sagt eins og rauðvín- ið, verður betri með aldrinum? „Það má vel vera eða eins og markverðirnir. Á meðan mér gengur vel held ég áfram á þessari braut. Eg stefni á íþróttanám og þjálfaranám- skeið í Osló næsta vetur og það væri gaman að fá tækifæri til þess að spila handbolta samhliða náminu. Mig langar að breyta til og hvers vegna ekki að slá til ef manni gefst kostur á því." — Er mikið mál að komast að sem leikmaður í Noregi? „Tvær stelpur frá Selfossi leika er- lendis, önnur í Noregi og hin í Dan- mörku, en þær fóru út sem au-pair en höfðu síðan samband við lið og kom- ust að. Ég hef áhuga á að víkka sjón- deildarhringinn með tilliti til þess að mig langar að þjálfa í framtíðinni og ein góð leið til þess, held ég, er sú að spila handbolta á erlendri grund." — Fá leikmenn í Noregi greitt fyrir að spila? „Það held ég ekki en hins vegar selja þær auglýsingar á bílana sína og ná þannig inn einhverjum aurum. Þó getur verið að þær bestu fái greiðslur að einhverju tagi." — En eru peningar í spilinu á ís- landi? „Eingöngu til erlendu leikmann- anna svo ég viti til. Kostnaður við erlendan leikmann er hálf önnur milljón á ári því það þarf að kosta til íbúðogbíl ogeinhver laun þannigað lítið verðureftir fyrir hinar. Fyrirsama peningmættifágóðan íslenskan leik- mann og borga öllum bónusa þannig að það er spurning hversu lengi á að vera að eltast við erlenda leikmenn. Það er samt Ijóst að deildin er bæði sterkari og skemmtilegri með þær innanborðs en tilkoma þeirra má ekki koma niður á öðrum leikmönn- um í hópnum sem leggja mikið á sig til að ná árangri." — Nú tíðkast félagaskipti varla í kvennaboltanum? „Það er varla hægt að segja að þau séu tíð þótt eitthvað hafi verið um félagaskipti þegar Fylkir tefldi fram liði á nýjan leik. Þó hefur verið hreyf- ing á einni og einni sfðastliðin ár. Reyndar fá sumar stelpur upphring- ingu árlega en við Guðný Gunn- steinsdóttir höfum grínast með það aðaldrei séhringtíokkur. Þaðereins ogallir viti hversu trúar viðerum okk- ar félagi. Reyndar hefur mér verið boðið að þjálfa meistaraflokka en ég vil frekar einbeita mér að þvíað bæta mig sem leikmaður og öðlast meiri reynslu sem þjálfari áður en ég tek við þjálfun meistaraflokks." — Færðu aldrei nóg af því að vera alltaf í íþróttum — að kenna, þjálfa og sjálf að æfa og spila? „Um leið og ég fæ leið á þessu þá hætti ég. Mér þykir rosalega gaman að þjálfa og ég hef verið heppin með hópa. Það sem pirrar mig er að meið- ast og þegar svo er ástatt fyrir mér kraumar í mér. En auðvitað má mað- ur ekki kvarta því það að vera já- kvæður skiptir miklu máli fyrir mann sjálfan og þann hóp sem maður er í." — Þar sem þú ert alltaf í íþrótta- galla klæðirðu þig þá ekki upp á kvöldin? „Ég skelli mér í gallabuxur til til- 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.