Íþróttablaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 40
^ÍKÖ
eftir Björn Inga Hrafnsson
Einar Bollason körfuboltafrömuð-
ur er af mörgum talinn einn þeirra
sem hvað mesta ábyrgð ber á þeirri
gífurlegu sprengju sem nú hefur orð-
ið í körfuknattleikur á íslandi. Hann
hefur, ásamt Heimi Karlssyni, fært
okkur íslendingum hinn stórkostlega
NBA-körfubolta á veturna á Stöð 2,
og gert körfuknattleik að afar vinsælu
sjónvarpsefni sem hefur náð algjöru
hámarki þegar fólk, sem ekkert vit
hefur á íþróttinni, hefur legið með
magapínu af spennu yfir því hvort
Jordan valti yfir Barkley eða öfugt,
eins og gerðist í ótrúlega skemmtileg-
um úrslitaleikjum í byrjun sumars.
En áhrifin koma ekki bara fram í
sjónvarpi. Alls staðar er búið að
koma upp körfum. Hvort sem er, úti á
landi eða í borginni, alls staðar má
sjá nokkra drengi eða stúlkur saman-
komin með derhúfur merktar uppá-
haldsliðinu í spennandi körfubolta-
leikjum, oft sleitulítið frá morgni til
kvölds. Einar Bollason spáir í spilin á
íslandsmótinu í körfu í vetur og veltir
einnig fyrir sér framtíðinni þegar
NBA KYNSLÓÐIN KEMUR UPP ...
— Hvernig líst þér á úrvalsdeild-
ina í vetur?
„Mér líst bara mjög vel á deildina
það sem af er. Ég held að ekki sé
nokkur spurning um að þetta verði
algert tímamótaár í íslenskum körfu-